140. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2011.

virðisaukaskattur af opinberri þjónustu.

[10:32]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Fyrr á þessu ári lagði ég fyrir hæstv. fjármálaráðherra fyrirspurn um það hversu há fjárhæð hefði verið greidd í virðisaukaskatt á árunum 2009 og 2010 á grundvelli þeirrar lagareglu að þeir aðilar sem eru í opinberri þjónustu og hafa undir höndum tiltekna starfsemi sem tilgreind er í lögunum skuli greiða virðisaukaskatt af vörum og þjónustu þegar varan er framleidd eða þjónustan innt af hendi eingöngu til eigin nota og í samkeppni við skattskylda aðila.

Þarna er sem sagt að finna í lögum reglu um að opinberir aðilar eigi ekki að koma á fót eigin þjónustustofnunum innan viðkomandi stofnunar til að sinna sjálfum sér í þeim tilgangi einum að koma sér undan því að kaupa þjónustuna hjá einkaaðilum og losna þannig við virðisaukaskattinn.

Það urðu mér mikil vonbrigði þegar ég fékk svar fjármálaráðherra um að það væri engin leið að finna út úr því hvort opinberir aðilar væru yfir höfuð að reikna sér virðisaukaskattinn og hversu há fjárhæð hefði skilað sér til ríkissjóðs vegna þessa. Viðskiptaráð benti á það á síðasta ári að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað um 30% á undanförnum áratug og starfsmönnum í opinberri stjórnsýslu um 55%, en á sama tíma hefði starfsmönnum á almennum vinnumarkaði einungis fjölgað um 3%. Það virðast vera til staðar hvatar, og þeir eru alveg sérstaklega sterkir á niðurskurðartímum, fyrir opinberar þjónustustofnanir til að koma á fót eigin þjónustueiningum og forða sér þannig frá því að lenda í virðisaukaskatti þegar keypt er þjónusta utan úr bæ.

Í svari ráðherrans kom fram að það væri í athugun að endurskoða lög um virðisaukaskatt og framkvæmd þeirra til að auðvelda yfirlit yfir starfsemi af þeim toga sem spurt var um og ég inni fjármálaráðherra eftir viðhorfum hans (Forseti hringir.) til þess hversu mikilvægt það er að koma þessum hlutum í lag þannig að ekki sé áfram gengið á einkageirann og hvernig vinnunni miði.