Varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Gunnari Braga Sveinssyni, Kristjáni Þór Júlíussyni og Kristjáni L. Möller um að þau séu á leið á alþjóðaþing Sameinuðu þjóðanna og geti ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur.
Í dag taka sæti á Alþingi varamenn þeirra, Ólafur Þór Gunnarsson, Sindri Sigurgeirsson, Arnbjörg Sveinsdóttir og Logi Már Einarsson. Ólafur Þór Gunnarsson, Sindri Sigurgeirsson og Logi Már Einarsson hafa áður tekið sæti á Alþingi á kjörtímabilinu og eru boðnir velkomnir til starfa á ný. Kjörbréf Arnbjargar Sveinsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.