140. löggjafarþing — 9. fundur, 17. okt. 2011.
manngerðir jarðskjálftar á Hellisheiði.
Hæstv. forseti. Mér finnst þetta mjög verðugt umræðuefni þótt ég kunni ekki að svara því eða hvort viðfangsefnið heyri undir ráðuneyti mitt sérstaklega, innanríkisráðuneytið. Þarna koma önnur ráðuneyti einnig við sögu, iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti svo dæmi séu tekin. Mér finnst sjálfsagt að taka þessa spurningu upp og ég skal fylgja henni eftir innan stjórnsýslunnar.