tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa við Reykjavíkurhöfn.
Forseti. Þótt seint sé er rétt í tilefni þessarar fyrirspurnar að óska Sinfóníuhljómsveitinni, tónlistarmönnum öðrum og okkur öllum til hamingju með nýtt og afar veglegt tónlistarhús í höfuðborginni. Þetta hefur verið draumur um árabil eins og allir vita og því ber að fagna að hann hafi ræst. Óvenjulegar aðstæður ríktu hins vegar hér á landi við undirbúning og fyrstu framkvæmdir að þessu tónlistarhúsi. Ástand sem kennt er við 2007 bjó meðal annars til afar flókna stjórnskipan og töluvert flúr við skipulagningu og undirbúning hússins í samblandi einkaaðila og opinberra aðila sem varla teldist heppilegt á okkar tímum eftir hrun sem felldi þetta reyndar allt saman aftur í opinbera eigu og umsjá. Vegna fyrri aðstæðna varð hins vegar eftir ákaflega flókið kerfi og hugsunarháttur og framgöngustíll einkageirans virðist hafa loðað við forustuhópinn í Hörpu og ímynd þess húss sem er mjög vont til frambúðar.
Þess vegna er mennta- og menningarmálaráðherra spurður hvaða breytingar séu fyrirhugaðar á stjórnskipan og rekstrarformi Hörpu nú þegar húsið er komið í gang og framkvæmdum að einhverju leyti lokið.
Í öðru lagi var í fyrirspurn á síðasta þingi spurt um kostnað sem þá var sagður vera samkvæmt útkomuspá 17,5 milljarðar kr. Fyrirspurnin var klaufalega orðuð og þess vegna því ekki svarað sem fyrirspyrjandanum, mér, þótti mikilvægt að fá svar við, þ.e. hver heildarkostnaðurinn við húsið hefði verið. Nú er því spurt um áætlaðan heildarkostnað við húsið frá upphafi og til þessa dags og með þeim framkvæmdum sem eftir eru. Einnig er spurt: Hvaða framkvæmdir eru það?
Í þriðja lagi er af þessu tilefni líka spurt um það sem vantaði í síðustu fyrirspurn: Hversu mikið fé var afskrifað við yfirtöku verkefnisins eftir hrun? Á hvern fellur sá kostnaður?
Þessi spurning er orðuð á mjög einfaldan hátt, jafnvel barnslegan. Það er með ráðum gert því að það er við þessum spurningum sem margir áhugamenn um þetta hús vilja fá (Forseti hringir.) almennilegt svar.