námsárangur drengja í skólum.
Frú forseti. Ég þakka þessa umræðu og það hversu margir þingmenn tóku þátt í henni. Þetta mál er brýnt og það þarf að taka á því nú þegar. Ég fagna því sérstaklega sem kom fram í máli hæstv. ráðherra áðan ef ég hef skilið hana rétt, hún ætlar að beita sér fyrir því að Námsmatsstofnun geri um land allt sambærilega könnun og Reykjavíkurborg gerði. Ég held að það sé fagnaðarefni. Um leið tek ég undir með til að mynda hv. þm. Pétri Blöndal um að þetta er vandamál og við þurfum að gera kröfur. Við þurfum að gera kröfur til okkar sjálfra, hvort sem það er á þingi, heima, hjá fjölskyldunum eða til kerfisins sjálfs. Kerfið þarf að geta tekið markvisst á þessu og það strax. Ég tel að við eigum að beita okkur fyrir skimun strax í 2. bekk. Ef það kemur síðan fram í 4. bekk að enn er vandamál verður einfaldlega að taka á því. Þess vegna verðum við að hafa samanburð á milli þessara mikilvægu ára í þroskasögu hvers einasta barns. Sem betur fer höfum við byggt upp, eins og fram hefur komið, skólakerfi sem tekur á mjög ólíkum einstaklingum. Við getum þetta allt, en við þurfum að gera kröfur og við þurfum að vera ófeimin við að gera þessar kröfur til okkar sjálfra.
Ég hafði gaman af því að lesa grein Guðmundar Andra Thorssonar í Fréttablaðinu í dag þar sem hann talaði einmitt um lesturinn, hvað það skiptir máli að menn lesi, að menn setjist niður og skilaboð verði send. Mig minnir að hann hafi orðað þetta þannig að heili tengdist heila sem er nefnilega svo merkilegt, að setjast niður í kyrrð og ró og ná tökum á lestrinum. Ábyrgð okkar allra er mikil, ekki síst foreldra.
Ég vek athygli á því sem meðal annars kennsluprófessor við háskólann í Þrándheimi sagði, að alhæfingar um að konur séu í meiri hluta kennara geti skemmt fyrir námsárangri barna, ekki síst drengja. Ef við ætlum að bæta námsárangur þarf fyrst og fremst að breyta kennsluaðferðum og skipulagi skóladags á yngsta (Forseti hringir.) stigi grunnskólans. Ég held að þetta sé nokkuð sem við eigum að líta til. Þetta er stórt og mikið verkefni sem ég vona sannarlega að við getum sameinast um að fara í og leyst.