nýsköpunarátak til að stórefla heilsársferðaþjónustu úti á landi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir innlegg hennar í umræðuna. Þessari þingsályktunartillögu, eins og ég gat um í lok máls míns áðan, er ekki beint gegn neinum landshluta og allra síst Suðurnesjum. Suðurnesin munu áfram eiga þann hlut í þeirri aukningu ferðamannastraums til landsins sem þeim stað ber. Sá staður hefur einfaldlega það gott forskot á aðra staði að störfum í ferðaþjónustu mun ekki fækka þar. Þeim mun einmitt fjölga vegna þess að stærstur hlutinn af þeirri aukningu sem fyrirsjáanlegur er í ferðamannastraumi til landsins mun einmitt koma þangað. Þar verður fremur um fjölgun starfa að ræða en hitt.
Með þessari tillögu er eingöngu verið að ræða um að fjölga áfangastöðum á landinu svo að einhver hluti þeirrar aukningar, og þar erum við ekki að tala um neina smáaukningu heldur tvöföldun á komu ferðamanna til landsins, falli í skaut annarra landsvæða en Suðvesturlands sem nú þegar er ofhlaðið, að minnsta kosti nokkrir helstu staðirnir, af ferðamönnum á helstu álagstímum; og um það vitna rannsóknir sem talað er um í þessari þingsályktunartillögu. Ég tel af og frá að ef af þessari tillögu verður muni hún verða til þess að störfum í ferðaþjónustu á Suðurnesjum muni fækka. Þvert á móti mun þeim fjölga í samræmi við þá miklu fjölgun ferðamanna sem við blasir. Hér er einvörðungu verið að tala um það að til að auka hag þessarar atvinnugreinar hljótum við að horfa til þess að einhver hluti aukningarinnar komi til annarra svæða en suðvesturhornsins.