lánsveð og 110%-leiðin.
Virðulegi forseti. Það er mikil þversögn í þessum málflutningi. Í öðru orðinu er kallað eftir frekari úrlausnum á 110%-leiðinni frekar en niðurfellingu hjá þeim sem skulda þar umfram en í hinu orðinu er sagt að sami forsendubresturinn hafi leikið alla grátt. Ég get alveg verið sammála seinni staðhæfingunni. Sami vandinn hefur leikið alla grátt, hvort sem menn eru skuldsettir 105% eða 130%. (Gripið fram í.) Fólk hefur séð eignarhlut sinn rýrna og skuldsetningu aukast.
Aðferðafræði 110%-leiðarinnar er ein leið til að nálgast þetta verkefni. Það er síðan mikilvægt að vinna að úrlausn á öðrum málum. Hluti af því er lánsveðavandinn. Hann er gríðarlega erfiður viðureignar vegna þess að þar er um stjórnarskrárvarin eignarréttindi eigenda lánsveðanna að ræða en það er verkefni sem ég held að við eigum að einhenda okkur í.