140. löggjafarþing — 14. fundur,  20. okt. 2011.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

28. mál
[16:38]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka innilega fyrir að þetta mál skuli vera komið á dagskrá. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir að leggja þetta fram svona, því að mér finnst í raun og veru langeðlilegast að kjararáð fari með þessi mál alfarið eða þá þingið sjálft, sem mér finnst reyndar galin hugmynd.

Mig langar eiginlega að byrja á því að benda á að það er einn möguleiki til. Ef kjararáð fær þetta alfarið í sínar hendur er til ein leið t.d. fyrir suma af yfirstéttinni í þingheimi. Ég t.d. hef rétt á 50% aukaálagi út af því að ég er í þeirri stöðu núna að vera formaður Hreyfingarinnar tímabundið. En ég vil leggja áherslu á að allir formenn Hreyfingarinnar — ég er þriðji formaðurinn, við róterum þessu á milli okkar á árs fresti — hafa alltaf afþakkað þetta formannsálag og þar af leiðandi sparað ríkinu töluverðar fjárhæðir. Við höfum heldur ekki viljað taka við peningunum til að útdeila þeim eitthvað, þessu 50% álagi, eins og við séum einhver góðgerðasamtök á þinginu á kostnað skattborgara.

Ég sat í þessari þingskapanefnd og ég man ekki eftir umræðu um þetta aukna álag á varavaraformenn og allt þetta. Ég hélt að það væri enn þá staðið við það að fela kjararáði að ganga frá þessum málum fyrir okkur, því að við erum greinilega pínulítið vanhæf til þess. Ég telst til þessara 14 eftir að ég afþakkaði þetta formannsálag, þessara 14 ótíndu — ég man ekki hvaða orð hv. þm. Mörður Árnason notaði um okkur. (Gripið fram í: Ótíndir er alveg ágætt.) Ótíndir, já. En ástæðan fyrir því að ég tek upp þetta hér með varaformenn og varavaraformenn eða 2. formann er sú að nú er komið mjög sérstakt kerfi í nefndunum þar sem við deilum á milli okkar verkefnunum og höfum til þess sérstaka rapportöra sem taka fyrir hvert mál sem er lagt fyrir nefndina, hvort sem það eru frumvörp eða ályktanir, og rétt eins og hv. þm. Þráinn Bertelsson bendir á er álagið á varaformenn og varavaraformenn kannski ekkert tiltölulega mikið meira en t.d. á þessa rapportöra.

Ég get samþykkt það, ég lenti í þeirri stöðu þegar ég var nýkomin inn á þing að taka að mér að vera þingflokksformaður og því fylgir mikið álag og ekki endilega mikil upphefð í mínum huga og sennilega eru leiðinlegustu fundir sem ég hef verið á lokafundir fyrir lok þingsins út af átökum sem þar voru. (Gripið fram í.) Já, maður gat eiginlega réttlætt það, maður þurfti alltaf að vera á vaktinni og bjó nánast inni á þingi. Ekki var nú orðið við þeirri tillögu frá mér að setja hér upp hengikojur fyrir þingmenn, maður gæti bara verið hér allan sólarhringinn. En ég legg til ef við höldum áfram svona vinnubrögðum að við jafnvel gerum það í sánasalnum sem enginn notar. [Hlátur í þingsal.] — Ég vil biðja hv. þm. Eygló Harðardóttur að hætta að hlæja svona mikið því að ég missi alveg fókusinn. — Sem sagt, ég vil bara ítreka það að mér finnst mjög mikilvægt að við séum heldur ekki mjög stjórnsöm áfram eins og hv. þm. Mörður Árnason lætur aðeins skína í með því að vera að segja kjararáði hvað það eigi að gera. Það getur líka einhvern tíma komið upp sú staða að einhverjir þingmenn taki upp á því að segja að þetta aukaálag ætti að vera að lágmarki 100%. Ég vil bara benda á að hægt er að hafa þetta í báða enda, þannig að fyrirbygging gæti endað með ósköpum.

Ég styð þetta mál heils hugar og ég vonast til þess að það fái skjóta og góða afgreiðslu. Mér finnst glatað að vera hér í þingsal að tala um launamál þingmanna og er sammála hv. þm. Lúðvíki Geirssyni að þetta er ekki rétti vettvangurinn til að ræða þau mál, launamál þingmanna. Það á ekki að vera í okkar höndum og við eigum ekki að geta útdeilt einhverjum aukaálagsgreiðslum til okkar. Mér finnst það bara mjög 2007-eitthvað. Mér finnst þetta mjög góð tillaga. En ég held að sumum hafi hreinlega sárnað þegar hv. þingmaður lagði hér fram frumvarp í sambærilegum tón fyrir nokkru eða á síðasta þingi og að sér vegið. Mér finnst þetta einmitt svo mikilvægt, því að ef maður kemst í þá stöðu t.d. að vera formaður nefndar þá fær maður einmitt meira tækifæri til að koma að sínum hjartans málum og því held ég að varla sé til meiri upphefð í þinginu en að fá að stjórna nefnd, eins og hv. þingmaður þekkir mætavel.

Ég ætla ekki að láta frekari orð falla um þetta en vonast til að það verði víðtækur stuðningur við málið á þinginu og ég á ekki von á öðru en að öllum finnist eðlilegt að kjararáð fjalli um launamál okkar frekar en við sjálf.