140. löggjafarþing — 15. fundur,  1. nóv. 2011.

störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Árni Johnsen (S):

Virðulegi forseti. Nú er svo komið að grípa verður mjög harkalega í taumana í stjórnun loftferðaeftirlits á Íslandi hjá Flugmálastjórn. Það er alveg ljóst að Flugmálastjórn hefur á margan hátt brugðist þeirri skyldu að tryggja eðlilegan framgang og þróun í fluginu á Íslandi. Þetta á ekki hvað síst við um allan smávélaflotann sem er nú bundinn við bryggju eins og sagt er og kemst ekki í þau verkefni sem þarf að vinna vegna óheyrilegs kostnaðar sem hefur þróast af túlkun Flugmálastjórnar og loftferðaeftirlits á öllu er lýtur að framgangi flugsins og túlkar kaþólskari en páfinn í öllum þessum þáttum út frá sjónarmiðum Evrópusambandsins og ESA.

Þetta er bara staðreynd og það er sorglegt að þetta skuli þróast á þennan hátt. Það má segja að Flugmálastjórn noti aðallega þá reglu að bregðast við með íþyngjandi aðferðum í öllu er lýtur að þróun í þessum málum. Ársskoðun á vél fyrir nokkrum árum, það sem kostaði að sinna þessum þætti, var um 200 þús. kr. en er núna um 2 millj. kr. Þetta gengur ekki í flugflotanum af minni stærðinni.

Það er mikilvægt, virðulegi forseti, að ganga fram af mikilli ákveðni í að spúla dekkið í þessum efnum og hæstv. innanríkisráðherra verður að taka til hendinni í því vegna þess að annars fer þetta á þann veg sem ekki er boðlegur í samfélaginu. Málið er svo alvarlegt að það er ástæða til að krefjast þess að yfirmenn Flugmálastjórnar víki úr starfi, séu hreinlega (Forseti hringir.) reknir ef þeir bæta ekki ráð sitt, draga til baka margar ákvarðanir sem þeir hafa gert og koma þessu (Forseti hringir.) aftur á réttan kjöl.