140. löggjafarþing — 15. fundur,  1. nóv. 2011.

áfengislög.

136. mál
[15:45]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er svolítið skrýtið, að hér séu í gildi lög sem leyft er að brjóta. Við setjum lög og reglur á hverjum degi með alls konar undanþágum og undantekningum, ekki rétt? Jú, rétt.

Í þessu frumvarpi er lagt til að þessi undantekning verði tekin út úr lögunum. (MÁ: … undantekningar …) Það er þannig, alveg sama hvað hv. þm. Merði Árnasyni finnst. Hann segir að þetta sé mér-finnst-umræða. Þetta er mér-finnst-frumvarp. Hvar eru röksemdirnar fyrir því að þetta skili þeim árangri sem segir í frumvarpinu að leiði líkur að? Hvar eru röksemdirnar? Ég mundi vilja fá þær hreint og beint og klárt.

Þær vantar vegna þess að hér segir að leiða megi líkur að, það er einfaldlega þannig.

Hann ber virðingu fyrir hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni. Ég ber virðingu fyrir öllum þeim sem sitja á þingi en ætla að leyfa mér að vera mitt á milli hv. þm. Sigurðar Kára Kristjánssonar hvað þetta varðar og hv. þm. Marðar Árnasonar vegna þess að ég held að hlutirnir séu ekki eins svartir og hvítir og hann vill vera láta. Ég held einmitt að við eigum að takmarka þetta á einn eða annan hátt með undantekningunum sem gera stöðu innlendrar framleiðslu sambærilega við erlenda framleiðslu sem flæðir yfir landið. Það á ekki að takmarka það. (MÁ: En sterkt vín?) Það á ekki að takmarka það. (MÁ: En sterka vínið?) Ég svaraði því áðan, hv. þingmaður, ég sé ekki ástæðu til að breyta þeirri löggjöf án umræðu. (MÁ: Ertu á móti sterku víni?) (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi skýrt mál mitt hér eins vel og mér er unnt. (Forseti hringir.) Ef hv. þm. Mörður Árnason nær þessu ekki öllu verður því ekki breytt.