flutningur Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.
Forseti. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar sem ég kannaðist reyndar við af því að ég hafði haft fyrir því að fara í gegnum þessa athugun, en endurtek að mér finnst skrýtið að ekki skuli hafa verið brugðist við þeirri athugun með einhverjum hætti í greinargerð með málinu sem hér er flutt, því að mál sem flutt eru á Alþingi eru flutt á Alþingi. Þau eru fyrir alla landsmenn, þau eru fyrir aðra þingmenn auðvitað að skoða en fyrir alla landsmenn að kynna sér. Því er ekki sæmandi, þó að ég sé ekki að kenna flutningsmönnum um það en það gæti virst af því að endurtaka sama þingmálið frá ári til árs, að menn séu fyrst og fremst að flytja þetta til heimanota í héraði, að hafa flutt það, en ekki til þess að efla umræðu um málið almennt.
Til að það sé gert vil ég spyrja — ég flyt ræðu á eftir og fer þá kannski vandlegar í suma hluti af þessu — 5. flutningsmann, framsögumann málsins, á þinginu annarrar spurningar. Hún fjallar um Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð. Það er alveg ljóst af viðbrögðum við tillögunni og þessari hugmynd yfir höfuð að sumir fagna þessu, einkum þeir sem fyrir eru í námunda við Keflavík og Keflavíkurflugvöll. En aðrir hafa af þessu áhyggjur og þær áhyggjur koma mjög skýrt fram hjá þeim sem eiga í samstarfi núna við Landhelgisgæsluna, og í Landhelgisgæslunni sjálfri náttúrlega, í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð, sem er starf sem hefur tekist mjög vel að dómi allra sem hafa komið nálægt því. Þess vegna hlýtur maður að inna flutningsmennina eða þann eina þeirra tíu sem hér er staddur eftir því hvað eigi að verða um Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð og hvort Landhelgisgæslan eigi þá að hætta því samstarfi eða hvort taka eigi það upp með öðrum hætti suður á Keflavíkurflugvelli eða einhvers staðar annars staðar.