140. löggjafarþing — 15. fundur,  1. nóv. 2011.

flutningur Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.

19. mál
[16:17]
Horfa

Flm. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Vissulega má gagnrýna greinargerð flutningsmanna tillögunnar, hún er auðvitað ófullkomin eins og önnur mannanna verk. (Gripið fram í.) En þar er enn og aftur lögð áhersla á helsta tilganginn sem er að koma Landhelgisgæslunni undir eitt þak. Í minnisblaðinu sem rætt var um áðan er talað um að staðsetningin á Reykjavíkurflugvelli sé góð fyrir flugdeildina en aðstaðan sé ekki góð, komið sé að viðhaldi húsnæðis, aðstaðan sé ekki í samræmi við öryggisstaðla og að þörf sé á að stækka aðstöðuna til lengri tíma litið og bæta hana en að núverandi skipulag á Reykjavíkurflugvelli leyfi það ekki.

Þó að hægt sé að tala um að aðstaða Landhelgisgæslunnar á þeim stöðum sem hún er í dag sé nægilega góð til skamms tíma er alveg ljóst að hana þarf að bæta. Það þarf að hugsa til framtíðar og huga að flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar að mínu mati. Og það þarf að fara að skipuleggja það sem fyrst vegna þess að það mun taka tíma. Skoða þarf alls konar álitamál, m.a. það álitamál sem hv. þm. Mörður Árnason kom inn á áðan þó að sú sem hér stendur geti ekki sagt nákvæmlega til um eða sé búin að sjá það nákvæmlega fyrir hvað verði um þá starfsemi, en eins og mönnum er kunnugt leigir Landhelgisgæslan þar aðstöðu af slökkviliðinu í Reykjavík, ef ég man rétt. Það yrði auðvitað breyting á því við flutninginn til Reykjanesbæjar.