140. löggjafarþing — 15. fundur,  1. nóv. 2011.

flutningur Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.

19. mál
[16:33]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka þátt í þessari umræðu um tillögu til þingsályktunar um flutning Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar. Ég er ásamt öðrum þingmönnum Suðurkjördæmis einn af flutningsmönnum tillögunnar og þarf því ekki að fjölyrða um stuðning minn við hana. Ég tek undir orð framsögumanns tillögunnar, hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur, þar sem hún fór yfir röksemdirnar sem er að finna í greinargerðinni.

Mig langar að bæta aðeins við og ræða hagkvæmnina af því að flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja. Það er akkúrat þess vegna sem við leggjum það til. Það er ekki gert til þess að færa atvinnuleysi milli Reykjavíkur og Reykjaness þó svo að atvinnuástandið á Suðurnesjum sé þannig að hér beri að gera allt sem í okkar valdi stendur til að leysa úr því. Mikið hefur verið rætt um kostnaðinn við flutninginn og loksins eftir nokkra bið kom hæstv. innanríkisráðherra fram fyrr á árinu, í apríl, með hagkvæmniathugun vegna flutnings starfsemi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Athugunin var unnin af fyrirtækinu Deloitte og kynnt með miklum bravúr að flutningurinn mundi leiða til mikils kostnaðarauka fyrir Landhelgisgæsluna.

Ég leyfi mér að gagnrýna þessa hagkvæmniathugun og ég gerði það á þeim tíma. Ég óska hér með eftir því, af því að hæstv. innanríkisráðherra er í salnum, að gerð verði einfaldlega ný hagkvæmniathugun þar sem bornir verða saman sambærilegir hlutir. Það var gagnrýnt á sínum tíma. Ég ætla aðeins að fara örfáum orðum um það að mér finnst þessi hagkvæmniathugun, sem gerð var á vegum ráðherra og er allra góðra gjalda vert að hún var loksins gerð, ekki tæk vegna þess að það er ekki verið að bera saman hvað kostar að reka Landhelgisgæsluna á höfuðborgarsvæðinu á móti því hvað kostar að reka Landhelgisgæsluna á Suðurnesjum, heldur er verið að bera saman Landhelgisgæslu … Hæstv. forseti. Ég er að reyna að eiga orðastað við hæstv. ráðherra og vildi óska þess að hæstv. ráðherra hefði tóm til að hlýða á mig. Það er gott að truflun hans er farin úr salnum í bili.

Í hagkvæmniathuguninni er verið að miða við gæslu með allt öðru fyrirkomulagi en þá gæslu sem við eigum að venjast í dag. Talað er um að stórauka starfsemi Gæslunnar á Suðurnesjum, taka upp viðveruskyldu hjá flugmönnum í staðinn fyrir að þeir séu á bakvakt eins og núna. Talað er um að fjölga starfsmönnum og auka öryggi þeirra sem þurfa á Gæslunni að halda, sem er allt gott og blessað. Ef hæstv. innanríkisráðherra ætlar að fjölga starfsfólki hjá Gæslunni, ef hæstv. innanríkisráðherra ætlar að bæta við þyrlum o.s.frv. þá styð ég hann í því og við skulum bara fara í það verkefni. En þá skulum við athuga hvað það kostar í Reykjavík og svo skulum við athuga hvað það kostar á Suðurnesjum.

Þetta er lykilatriði. Við höfum núna sambærilegt dæmi til að miða við. Ég ætla að grípa niður í hagkvæmniathugunina, bara sem lítið dæmi. Í niðurstöðum plaggsins segir á bls. 10, með leyfi forseta:

„Kostnaður vegna ferða starfsmanna til Keflavíkurflugvallar er metinn 185,7 milljónir en við flutning til Keflavíkurflugvallar þarf að greiða aksturskostnað og kílómetragjald samkvæmt kjarasamningum og flytja áhafnir með rútum.“

Þetta þykir mér mjög athyglisvert vegna þess að við þingmenn erum nýkomin úr kjördæmaviku og við heimsóttum m.a. ríkisstofnun sem á að flytja til Reykjavíkur, réttargæsludeildina á Sogni. Þar á að leggja niður 30 starfsmanna stofnun og flytja hana á Kleppsspítalann í Reykjavík. Er starfsmönnum boðið upp á aksturspeninga til og frá og greiðslur samkvæmt kjarasamningum og akstur með rútu? Nei, þar er starfsmönnum einfaldlega sagt: Verið er að flytja starfsvettvang ykkar til Reykjavíkur. Ykkur verður öllum boðið starf. Við getum ekki sagt að það verði sambærilegt starf en ykkur verður boðið starf. Það var tekið sérstaklega fram að þeir fá ekki greidda aksturspeninga og ekki verður séð um að flytja þá til Reykjavíkur en allir þessir starfsmenn búa á Árborgarsvæðinu.

Þá spyr ég: Af hverju í ósköpunum er gert ráð fyrir 200 millj. kr. kostnaði við þennan þátt í athuguninni þegar það er greinilegt að ef ríkisstjórnin flytur verkefni utan af landi til Reykjavíkur, ekki frá Reykjavík út á land, er honum ekki til að dreifa? Við þurfum einfaldlega að fá aðra hagkvæmniathugun þar sem bornar eru saman sambærilegar forsendur, þar sem borinn er saman sambærilegur rekstur Landhelgisgæslu á Suðurnesjum við rekstur í Reykjavík.

Svo er annað sem er stórfurðulegt í þessari úttekt, það var ekki gerð úttekt á hentugu húsnæði fyrir Landhelgisgæsluna á Keflavíkurflugvelli. Í skýrslunni segir:

„Úttekt á hentugu húsnæði fyrir Landhelgisgæsluna á Keflavíkurflugvelli hefur ekki verið framkvæmd og því er ekki gert ráð fyrir kostnaði sem fellur til við standsetningu á húsnæði í þessari athugun en ljóst er að hann gæti verið verulegur.“

Eitt er að reikna ekki með þeim kostnaði, það er um að gera að taka alla kostnaðarliði með í dæmið, en ein af meginforsendum tillögu okkar er sú að á Keflavíkurflugvelli og á Reykjanesinu sé til miklu hentugra húsnæði til að reka Landhelgisgæsluna. Að taka þann þátt út fyrir sviga og ræða ekkert um hann, hvorki kosti hans né galla, finnst mér bara sýna að þessi athugun er hvorki fugl né fiskur.

Ég óska því eftir að ný athugun verði gerð og ég vona að hæstv. ráðherra geri það vegna þess að ég er sannfærð um að þegar til lengri tíma er litið og þegar við hugsum um framtíðarstarfsemi Gæslunnar sé flutningur hagkvæmur. Í þessari nefndu hagkvæmniathugun er talað um að flugstarfsemin á Reykjavíkurflugvelli geti ekki vaxið til framtíðar vegna þess að húsnæðið er óhagkvæmt og aðstaðan er ekki til staðar. Við heyrðum í þingmanni Reykjavíkurkjördæmis hér áðan sem sagði það stefnumál sitt að koma Reykjavíkurflugvelli burt úr kjördæminu fyrir 2016. Ég hef reyndar ekki trú á því að svo verði en ef það verður niðurstaða Reykvíkinga býð ég innanlandsflugið velkomið til Suðurnesja vegna þess að þar er nóg pláss og vilji til að taka við frekari starfsemi.

Það er klárt að ef allir þessir hlutir eru lagðir saman, ef allir þessir hlutir eru metnir með sambærilegum hætti, er ég algjörlega sannfærð um að við fengjum aðra niðurstöðutölu en þá sem hér liggur til grundvallar. Það er í rauninni ótækt að hún hafi orðið grunnur að umræðunni í vor.

Síðan hlýt ég að nefna í lokin að þetta tengist auðvitað allt saman að stórum hluta til niðurlagningu Varnarmálastofnunar vegna þess að enn á eftir að finna framtíðarfyrirkomulag á verkefnum hennar, enn á eftir að ganga frá endanlegum samningum. Nú er þeim verkefnum fyrir komið tímabundið hjá Landhelgisgæslu og annars staðar í stjórnkerfinu. Enn á eftir að ganga frá því fyrirkomulagi til lengri tíma og ég sé á þingmálaskrá innanríkisráðherra að það liggur ekki meira á því en svo að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í tengslum við tilfærslu varnartengdra verkefna er ekki boðað fyrr en á vorþingi. Fyrst frumvarpið á ekki að koma fyrr en í vor hvet ég hæstv. ráðherra til að taka þennan pakka allan saman vegna þess, ef maður horfir á fjárhagsstöðu Gæslunnar, að þar eru líka tækifæri fyrir Gæsluna að komast inn í innkaupakerfi Atlantshafsbandalagsins o.s.frv. Þar væri því tækifæri (Forseti hringir.) til að auka fjárheimildir Gæslunnar. Ég óska eftir því að þetta verði skoðað í fyllstu alvöru.