höfuðborg Íslands.
Forseti. Ég skal fúslega viðurkenna það á mig að ég hef ekki kannað þetta um aðrar höfuðborgir, hvort þar er í gildi samningur milli ríkisins og höfuðborgarinnar eða sérstök höfuðborgarstefna. Vandinn eða aðstæðurnar eru víðast þær sömu, a.m.k. þar sem ég þekki til í okkar heimshluta, að alls staðar er það talið vænlegt og full ástæða til væntanlega að tala illa um þá fyrir sunnan, að það sé spenna milli höfuðborgarinnar og höfuðborgarsvæðisins annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar. Skýrast er þetta kannski, af þeim löndum sem ég þekki til, í Frakklandi þar sem Frakklandi var stjórnað frá París allt frá því að kóngarnir settust þar að og þó sérstaklega frá og með frönsku byltingunni en er þó aðeins að dofna yfir því núna á þessum stundum.
Ég tel ástæðu til að kanna þetta þó að ég hafi ekki gert það sjálfur sem ég hefði auðvitað átt að gera og kannski gerir nefndin það með einhverjum hætti. Ég held samt að það sé sérstök ástæða til að taka upp þessa samningshugmynd á Íslandi vegna þess að hvergi þar sem ég þekki til í alvörulandi — þá er ég ekki að tala um Mónakó eða Liechtenstein eða einhver þvílík lönd með fullri virðingu fyrir þeim — er sú staða uppi að höfuðborgin eða höfuðborgarsvæðið sé jafnöflugt miðað við aðra hluta landsins og hér að tveir þriðju hlutar landsmanna búi á höfuðborgarsvæðinu og hún skipti svona feikilega miklu máli í þessu samhengi. Jafnvel í Frakklandi eða hvert annað sem við förum, til Noregs, jafnvel Danmerkur, er þetta ekki svona. Í höfuðborginni býr kannski þriðjungur, fjórðungur landsmanna en hvergi er þetta ástand og aðrar borgir yfirleitt mjög sterkar eins og allir geta séð sem renna landakortinu í gegnum hugann.