140. löggjafarþing — 17. fundur,  3. nóv. 2011.

Varamenn taka þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Lúðvíki Geirssyni, 11. þm. Suðvest., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. Óskað er eftir því að 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Amal Tamimi framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi á meðan. 1. varamaður flokksins í Suðvesturkjördæmi, Magnús M. Norðdahl, hefur boðað forföll.

Kjörbréf Amal Tamimi hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.

 

[Amal Tamimi undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]