ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum, aðgerðir í skattamálum, verðlagsbreytingar o.fl.
Þetta er í þriðja sinn sem hæstv. fjármálaráðherra leggur fram bandorm frá því að hann tók við völdum vorið 2009 og nú liggur fyrir að rúmlega 100 breytingar hafa verið gerðar á skattkerfinu í hans fjármálaráðherratíð. Það verður því ekki sagt annað en að hann hafi verið iðinn við kolann og endurspeglast það í þessu frumvarpi auk mikillar hugmyndaauðgi í hvað á að skattleggja og hvernig.
Ég ætla að byrja á því að tala aðeins um forsendur fjárlaganna. Ég tel að þær forsendur sem þetta fjárlagafrumvarp styðst við séu óraunhæfar. Þar er gert ráð fyrir því að hagvöxtur verði 3,1% á næsta ári og að hagvöxtur verði drifinn af fjárfestingu annars vegar og einkaneyslu hins vegar.
ASÍ birti hagvaxtarspá fyrir skömmu. Þar kemur fram að ASÍ gerir ráð fyrir því að hagvöxtur á næsta ári verði í kringum 1%, ekki 3,1% eins og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Seðlabankinn gaf einnig út spá fyrir einhverjum mánuðum síðan þar sem gert var ráð fyrir 1,6% hagvexti en sú spá var uppfærð í 2,3% í gær og þar var helst nefnt að fjárfesting hefði verið vanmetin í fyrri spá og einkaneysla. Ef það er rétt hjá Seðlabankanum og sú spá rætist eru áhrifin af ofmetnum hagvexti í fjárlagafrumvarpinu í kringum 9 milljarðar þannig að það verður þá 9 milljarða gat í fjárlögum. Það sem meira er er að spá Seðlabankans byggir á því að fjárfesting verði meiri og einkaneysla meiri en menn gerðu ráð fyrir. Ef maður skoðar hvaða fjárfestingarkostir það eru sem þar eru birtir er gert ráð fyrir því að það verði miklar framkvæmdir í Helguvík og fyrir norðan í kringum Þeistareykjaverkefnið, þ.e. uppbygging á Húsavík. En ef maður rýnir í þau verkefni á maður erfitt með að sjá, miðað við stöðuna eins og hún er núna, hvernig þau verkefni geti farið í gang. Í fyrsta lagi er ekkert í hendi fyrir norðan. Þrátt fyrir að Landsvirkjun hafi haldið því fram að það sé einungis tímaspursmál hvenær skrifað verði undir samning liggur fyrir að forsvarsmenn þess fyrirtækis sem þar um ræðir hafa talað um að ástandið í Evrópu sé þannig að erfitt gæti orðið að fjármagna verkefnið. Jafnframt hafa þeir sagt að raforkuverðið sem Landsvirkjun hefur farið fram á sé of hátt miðað við getu og arðsemi fyrirtækisins.
Þá er í þessum bandormi kynntur til sögunnar aukinn skattur á sjávarútveg sem leiðir óhjákvæmilega til þess að fjárfesting mun verða enn minni þar en ella. Fjárfesting er nú í sögulegu lágmarki í sjávarútvegi, að meðaltali undanfarinn áratug var fjárfesting á milli 17 og 20 milljarða á ári en er núna í kringum 4,5–5 milljarða. Það er því ekki óvarlegt að áætla að það muni draga enn úr fjárfestingum í sjávarútvegi og þá sérstaklega vegna þeirrar óvissu sem ríkir um framtíð sjávarútvegsins. Annað mál væri ef gengið yrði frá fiskveiðistjórnarmálum, þá yrði hægt að ná upp mikilli fjárfestingu í þeirri grein. Við höfum metið í efnahagstillögum Sjálfstæðisflokksins að uppsöfnuð fjárfesting á næsta og þarnæsta ári gæti orðið allt að 30 milljörðum. Það er algjörlega í takt við það sem forráðamenn greinarinnar hafa sagt og forstjórar og framkvæmdastjórar einstakra fyrirtækja.
Gert er ráð fyrir að einkaneysla muni aukast á næsta ári um 3%. Ég á erfitt með að sjá hvernig það gengur upp miðað við verðbólguþróun og launaþróun og síðast en ekki síst þar sem dregur núna mjög úr útgreiðslu á séreignarlífeyrissparnaði sem hefur verið rúmir 20 milljarðar á ári og hefur gefið heimilunum færi á meiri einkaneyslu en ella.
Nóg um forsendurnar. Ég ætla að snúa mér aðeins að tekjuhluta þessa frumvarps og fara yfir nokkra hluti. Skattlagning aðila með takmarkaða skattskyldu vekur athygli mína. Þar á að breyta til eins og segir í greinargerð með frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Frá því að umrætt ákvæði var lögfest hafa komið upp ýmis álitamál, bæði varðandi túlkun og framkvæmd þess.“ — Síðan segir að fjármálaráðherra hafi „uppi þau áform að endurskoða þetta ákvæði frá grunni með hliðsjón af norrænum rétti. Þar verður einkum horft til dönsku reglnanna, en þær snúa fyrst og fremst að viðskiptum tengdra aðila.“
Þegar þessi skattlagning var kynnt til sögunnar vorið 2009 og aftur með breytingum í síðasta bandormi 2010 þá vöruðum við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd mjög eindregið við því að fara þá leið sem ákveðið var að fara, bentum nákvæmlega á — ég veit ekki hvort það var lesið upp úr greinargerðinni — að það væri vandamál hvað varðar túlkun og framkvæmd. Jafnframt sögðum við að ef þessi leið yrði farin ættum við að horfa til dönsku reglnanna en þær snúa fyrst og fremst að viðskiptum tengdra aðila. Það var svo sem eins og fyrri daginn að ekki var hlustað á okkur þrátt fyrir að það hefði sýnt sig í fjölmörgum skattbreytingum, sem hafa verið gerðar hér frá vori 2009, að við höfðum rétt fyrir okkur í þeim málum og fjármálaráðuneytið aftur á móti rangt fyrir sér. Ég tek því þá þannig að hæstv. ráðherrann muni hlusta af athygli á þá gagnrýni á þá annmarka sem við sjáum á þessu frumvarpi vegna þess að reynslan á að hafa kennt honum að það er kannski ekki rétt að æða út í hlutina vanhugsað og betra að hlusta á þá sem hafa kannski aðeins meiri innsýn í hlutina. Ég fagna því að það eigi að breyta þessu ákvæði í átt við það sem við sjálfstæðismenn lögðum til strax árið 2009.
Þá kemur að iðgjaldi á viðbótarlífeyrissparnað. Það á að lækka skattfrelsið úr 4% í 2%. Voru helstu rökin þau að heimilin þyrftu á þessum tekjum að halda og ekki væri rétt að þau spöruðu þær til elliáranna heldur ættu þau að nota þær til neyslu í dag og þannig hvetti það til einkaneyslu. Þetta held ég að sé algjörlega vanhugsað. Í fyrsta lagi er það form sem hér er með viðbótarlífeyrissparnaðinum mjög gott og hefur reynst vel í að auka sparnað í landinu. Núna þegar sparnaður á mjög undir högg að sækja er varhugavert að ganga inn í kerfin á þann hátt sem hér er lagt til auk þess, eins og við heyrðum í gær í ræðu seðlabankastjóra, sem Seðlabankinn er farinn að hækka vexti. Það verður fróðlegt að sjá hvort viðbrögð Seðlabanka við þessari breytingu verði þau að til að slá á einkaneyslu, sem væntanlega myndast við þetta, þurfi að hækka vexti. Þetta er algjörlega vanhugsuð breyting sem hér er lögð til og legg ég til að hún verði strikuð út.
Þá er komið að auðlegðarskattinum. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í ræðu sinni að horft væri til fyrirmynda erlendis, að mikið væri talað um að leggja á auðlegðarskatt og annað slíkt til að láta hina efnameiri leggja meira til þjóðfélagsins. Það er ágætishugsun en það er bara ekkert verið að tala um það erlendis. Erlendis er verið að tala um að leggja hærri skatta á þá sem njóta fjármagnstekna, á þá tekjumeiri. Það er ekki verið að tala um að leggja á eignarskatta. Það eru ósanngjarnir skattar sem eru lagðir á eignir en ekki tekjur vegna þess að það getur verið að fólk sem býr við miklar eignir hafi litlar tekjur. Eins og fjárhæðarmörkin eru hér, um 70 milljónir, sér maður það fljótt að t.d. eldra fólk sem á húsið sitt skuldlaust og kannski sumarbústað þarf að minnka við sig og selja til að geta staðið skil á þessum sköttum. Jafnframt flýr fólk land undan sköttum eins og þessum. Það hefur sýnt sig vegna þess að efnað fólk hefur verið að flytja lögheimili sitt annað sem leiðir til þess að ríkissjóður missir tekjurnar með öllu og þær fara til einhverra annarra landa. Eins og fyrr er þetta vanhugsað.
Þá kemur að kolefnisgjaldinu. Áætlað er að eldsneyti og kolefnistengdar vörur muni hækka um 800 millj. kr. auk þess sem eldsneytisskattar verða hækkaðir. Það er algjörlega ljóst að það hækkar eldsneytið beint sem er ekki það sem íslensk heimili eru að biðja um í dag, hærra eldsneytisverð, auk þess sem skattur á fasta kolefnið leiðir til þess að samkeppnisstaða okkar gagnvart öðrum löndum versnar þegar kemur að rekstri fyrirtækja sem nota fast kolefni.
Þá kemur að veiðigjaldinu. Hér er lagt til að veiðigjald verði hækkað, veiðigjald á atvinnugrein sem er í gríðarlega mikilli óvissu. Það er ljóst að ekki fara saman orð og gjörðir. Í fyrra var svokölluð sáttanefnd sett saman og hún komst að þeirri niðurstöðu að það væri sanngjarnt að útgerðirnar fengju nýtingarsamninga gegn því að borga gjald fyrir. Hér er gjaldið bara hækkað en ekkert bólar á þeirri sátt sem komst á milli mjög ólíkra hagsmunaaðila. Aftur á móti sá ég í fréttum í morgun að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði að lagt yrði fram nýtt frumvarp til breytinga á fiskveiðistjórnarkerfinu um næstu mánaðamót. Tíminn verður því að leiða í ljós hvað mun verða úr því.
Tekjumörkin eru ekki verðtryggð sem jafngildir almennri skattahækkun, þ.e. tekjumörkin hækka en ekki til móts við verðlag þannig að það þýðir aukna skattbyrði á almenning. Hæstv. fjármálaráðherra sagði að heildaráhrif á almenning og fyrirtæki yrðu jákvæð við skattahækkunina. Það er einhver öfugmælavísa vegna þess að ég hef aldrei heyrt að skattahækkanir geti verið jákvæðar efnahagslega fyrir almenning og fyrirtæki. Það er alveg ný nálgun á málið og óneitanlega er hún þó nokkuð frumleg.