staðan í aðildarferlinu við ESB.
Virðulegur forseti. Í gær áttum við fund í utanríkismálanefnd og í atvinnuveganefnd með hæstv. ráðherra Jóni Bjarnasyni. Þá kom einmitt það sama í ljós og mér fannst vera dálítið að gerast hér, Samfylkingin er orðin alveg ótrúlega pirruð á þessu öllu saman. Það er verið að höggva í draumalandið hjá þeim og það er alveg agalegt að fylgjast með því hvað pirringurinn er mikill.
Hvar erum við stödd núna, tveimur árum eftir að umsóknin var lögð fram? Nú segir hæstv. ráðherra, og það mátti skilja orð hans þannig, að við ættum að drífa þessar viðræður í höfn til að geta gefið Evrópusambandinu pólitískt heilbrigðisvottorð, að við eigum að flýta okkur að semja við Evrópusambandið vegna þess að það vantar pólitískt heilbrigðisvottorð. (Gripið fram í.) Ég man bara eftir því, fyrir rúmum tveimur árum, að þá lá okkur óskaplega mikið á inn í þetta samband vegna þess að við þurftum að drífa þjóðarskútuna sem hafði orðið fyrir brotsjó inn í góða Evrópusambandið til að styrkja skútuna. Nú er stóra Evrópusambandsskútan að sökkva og þá eigum við á litlu duggunni að koma henni til hjálpar og gefa henni pólitískt heilbrigðisvottorð. Ég næ þessu ekki alveg.
En það var nefnilega líka þannig að í framsöguræðu hæstv. utanríkisráðherra árið 2009, með umsókninni, átti umsóknin ein og sér að tryggja erlenda fjárfestingu. Hún átti að tryggja að endurreisnin gengi hraðar fyrir sig. (Utanrrh.: Ekki …) Þetta sagði hæstv. utanríkisráðherra, ég skal leggja eintak af ræðunni hér á borðið hans á eftir. Núna sjáum við, tveimur árum seinna, að það skiptir engu máli. Hæstv. innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, talaði hér síðast í ræðu áðan um loftkastalasmíð (Forseti hringir.) og dollarablik í augum. Ég held að hæstv. utanríkisráðherra sjái að þessi umsókn hefur ekkert með það að gera hvort við náum hingað inn erlendri fjárfestingu eða ekki (Forseti hringir.) og hún hjálpar okkur ekki í endurreisninni. Ég held að við ættum að (Forseti hringir.) drífa okkur í því hér og nú að leggja þetta til hliðar og fara að einbeita okkur að því sem skiptir máli.