140. löggjafarþing — 18. fundur,  8. nóv. 2011.

staðan í aðildarferlinu við ESB.

[14:25]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (U):

Frú forseti. Málflutningur þeirra sem vilja draga aðildarumsókn að Evrópusambandinu til baka hverfist alltaf sífellt meira um eitt tiltekið hugtak og það er aðlögunarviðræður. Við heyrðum þetta í máli framsögumanns hér áðan, hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur, hún kallaði samningaviðræðurnar ítrekað aðlögunarferli eða aðlögunarviðræður. Þetta er gert alveg ítrekað og samviskulaust, að samningaviðræðurnar eru kallaðar þessu orði. Þetta er gert með það að markmiði væntanlega að skapa tortryggni í garð þessara viðræðna og mér finnst ástæða til þess, áður en þetta hugtak verður notað frekar, að fara fram á það að þetta verði rökstutt betur. Hvernig er þetta aðlögun?

Það kom fram í máli hæstv. utanríkisráðherra áðan að ESB hefur fallist á það að það verði engu breytt á Íslandi, það fari ekki fram nein aðlögun að regluverki Evrópusambandsins meira en orðið hefur með EES-samningnum fyrr en eftir að, og ef, þjóðin segir já við samningi.

Ef menn ætla að halda áfram að tala um aðlögun í þessum efnum verða menn að sýna fram á, bara sýna mér skýrt fram á, að ef þjóðin segir nei við aðildarsamningi hafi eitthvað samt breyst í íslensku samfélagi gegn okkar vilja út af viðræðunum. Ef fólk getur ekki sýnt fram á þetta, að eitthvað hafi breyst ef þjóðin segir nei, verður fólk að hætta að tala um aðlögunarviðræður og nota það til að þyrla upp ryki og tortryggni í garð þessa eðlilega ferils sem 27 ríki (Forseti hringir.) Evrópu hafa gengið í gegnum með ágætisárangri og eru býsna ánægð með það.