140. löggjafarþing — 18. fundur,  8. nóv. 2011.

staðan í aðildarferlinu við ESB.

[14:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Niðurstaðan í þessari umræðu er mjög einföld. Þetta er sjálfsagt. Ef það er stefna Vinstri grænna að ganga ekki í Evrópusambandið er ekki stuðningur fyrir því að sækja um aðild. Þetta er ekkert flókið. Og það er fullkomlega séríslenskt að menn komi hingað og eyði milljörðum króna í að sækja um eitthvað til að kanna hvað er í boði. (Gripið fram í.) Ég hvet hv. þm. Guðmund Steingrímsson til að lesa sér til um það hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. (GStein: Ég er búinn að því.) Búinn að því? Hv. þingmaður segist vera búinn að því. Hann veit ekkert um það. Það kemur alveg skýrt fram í umræðunni og ég hvet menn til að lesa til dæmis Stefán Má Stefánsson sem hefur þýtt á okkar ylhýra íslenska mál nákvæmlega hvað felst í því, hvað fólst í því fyrir Möltu og öll hin ríkin. Öll ríki sem ganga í Evrópusambandið ganga að regluverki Evrópusambandsins óbreyttu. Það eru engar varanlegar undanþágur vegna þess að ESB getur alltaf breytt því, það er alltaf gengið þannig frá því.

Hér koma menn upp og segja: Það er svo spennandi að kanna þetta, og setja nokkra milljarða í að kanna þetta. Svo kemur VG og segir: Við viljum alls ekki fara inn. Flott, þá bara sækjum við ekki um aðild. Maður sækir ekki um aðild nema maður vilji fara inn. Ef hæstv. utanríkisráðherra vill að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu á hann að koma hingað og færa rök fyrir máli sínu. Þessi málflutningur er gersamlega fyrir neðan allar hellur. Það er aukaatriði hvaða fundur var haldinn, hversu lengi hann var, hvað gerðist o.s.frv. Ef menn vilja ganga í Evrópusambandið verða þeir að færa rök fyrir því.

Fleiri ríki hafa gengið í Evrópusambandið ef það hefur farið fram hjá einhverjum. Það liggur alveg fyrir, íslenskir og erlendir fræðimenn hafa stúderað hvað felst í því og ég hvet menn til að segja satt og rétt frá.