140. löggjafarþing — 19. fundur,  9. nóv. 2011.

heilbrigðisstarfsmenn.

147. mál
[16:15]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um heilbrigðisstarfsmenn. Frumvarpið var flutt á 139. löggjafarþingi en ekki vannst tími til að ljúka umfjölluninni þá og hefur frumvarpið nú verið lagt fram að nýju með smávægilegum breytingum. Fyrrgreint frumvarp var einnig lagt fram á 137. og 138. löggjafarþingi þannig að frumvarpið hefur þrisvar sinnum verið til umfjöllunar hjá þáverandi heilbrigðisnefnd Alþingis og hefur jafnoft verið sent til umsagnar.

Upphaflegt frumvarp hefur tekið allmiklum breytingum frá því það var fyrst lagt fram, meðal annars með hliðsjón af umsögnum sem bárust heilbrigðisnefnd Alþingis og umfjöllun í nefndinni. Eins og fyrr greinir eru breytingar frá því frumvarpi sem lagt var fram á síðast þingi mjög litlar en þær eru í fyrsta lagi orðalagsbreyting á 3. mgr. 3. gr. þar sem fjallað er um þau atriði sem líta beri til við ákvörðun um hvort fella eigi starfsstétt undir lögin. Í öðru lagi er orðalagi 1. mgr. 5. gr. um heimild ráðherra til að kveða á um starfssvið viðkomandi heilbrigðisstéttar í reglugerð lítillega breytt. Í þriðja lagi er 1. mgr. 11. gr. um tímabundið starfsleyfi læknanema færð til samræmis við orðalag í núgildandi ákvæði 4. gr. læknalaga og gerðar viðeigandi breytingar á 4. mgr. 11. gr.

Megintilgangurinn með rammalöggjöf um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna er að samræma og einfalda gildandi ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn og tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur til heilbrigðisstarfsmanna. Ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn eru gerð markvissari og hnitmiðaðri en áður, felldar brott ónauðsynlegar takmarkanir á starfssviði heilbrigðisstétta og ákvæði færð til nútímahorfs þannig að heilbrigðisþjónustan og störf og starfssvið heilbrigðisstétta geti þróast með eðlilegum hætti innan ramma löggjafar.

Gert er ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð um ýmis atriði sem eru þess eðlis að betur fer á að þau séu ákveðin í stjórnvaldsfyrirmælum. Meðal annars má nefna kröfur um nám og eftir atvikum starfsþjálfun sem umsækjendur um starfsleyfi þurfa að uppfylla. Jafnframt verði kveðið á um starfssvið þeirra með reglugerð.

Frumvarpið sem við ræðum hér byggist að stofni til á ákvæðum læknalaga, nr. 53/1988, enda er tilvísun til læknalaga í flestum lögum og reglugerðum um heilbrigðisstéttir. Ýmis ákvæði læknalaga gilda því almennt um heilbrigðisstarfsmenn og má segja að þau séu að vissu marki grundvallarlög fyrir heilbrigðisstéttir. Einnig má vísa til setningar laga um landlækni, nr. 41/2007, en með þeim var stigið skref í átt til samræmingar ákvæða um eftirlit landlæknis með heilbrigðisstarfsmönnum með því að taka upp í þau lög ákvæði um veitingu áminninga, sviptingu starfsleyfis og endurveitingu starfsleyfis heilbrigðisstarfsmanna.

Löggiltar heilbrigðisstéttir eru nú 33 og sérlög gilda um 14 heilbrigðisstéttir, en 19 stéttir hafa verið löggiltar með reglugerðum með stoð í lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Frumvarp um rammalöggjöf um heilbrigðisstarfsmenn hefur verið lengi í smíðum í heilbrigðisráðuneytinu og hefur ráðuneytið þrisvar sinnum sent drög að frumvarpi til umsagnar eins og áður sagði, síðast í desember 2008, en þá voru drög að frumvarpi m.a. send til fagfélaga heilbrigðisstétta, Lyfjastofnunar, landlæknisembættisins, menntastofnana og heilbrigðisstofnana og bárust alls 25 umsagnir.

Þá hefur heilbrigðisnefnd Alþingis þrívegis sent frumvarpið til umsagnar. Við undirbúning frumvarpsins hefur m.a. verið höfð hliðsjón af norskum lögum um heilbrigðisstéttir frá árinu 1999, en þau lög taka til allra heilbrigðisstétta, þar á meðal lækna og hjúkrunarfræðinga.

Gildandi laga- og reglugerðarákvæði um heilbrigðisstéttir eru að ýmsu leyti úrelt og gætir þar töluverðs ósamræmis t.d. varðandi hvaða heilbrigðisstéttir geta starfað sjálfstætt og hverjar starfa á ábyrgð annarrar heilbrigðisstéttar, hvaða heilbrigðisstéttir mega hafa aðstoðarmenn og hverjir ekki og hvaða heilbrigðisstéttir þurfa að halda skýrslur um störf sín og hverjar ekki.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðherra geti með reglugerðum kveðið nánar á um ýmis atriði eins og áður sagði og eru þess eðlis að betur fer á að þau séu ákveðin að stjórnvaldsfyrirmælum. Má þar m.a. nefna kröfur um nám o.s.frv.

Virðulegur forseti. Helstu breytingar og nýmæli sem felast í frumvarpinu og voru komin inn í það þegar það var síðast lagt fram eru eftirfarandi:

Í fyrsta lagi er hér um að ræða eina samræmda rammalöggjöf um heilbrigðisstarfsmenn sem kemur í stað 14 sérlaga og laga um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Í öðru lagi að starfssvið heilbrigðisstétta verði ákveðið á grundvelli þekkingar og hæfni með tilliti til hagsmuna sjúklinga og úrelt ákvæði um takmarkanir á starfsréttindum felld brott.

Í þriðja lagi er kveðið á um það í frumvarpinu að heilbrigðisstarfsmaður skuli virða faglegar takmarkanir sínar og vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns þegar við á.

Í fjórða lagi er það undirstrikað í frumvarpinu að óheimilt sé að starfa undir áhrifum áfengis eða vímuefna og er heilbrigðisstofnunum heimilað að setja reglur um bann við notkun áfengis og vímuefna um tiltekinn tíma áður en vinna hefst.

Í fimmta lagi er kveðið á um að heilbrigðisstarfsmenn beri ábyrgð á að aðstoðarmenn þeirra hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar til að sinna störfum sem þeir fela þeim.

Í sjötta lagi er kveðið á um að heilbrigðisstarfsmenn skuli gæta þess að sjúklingar, sjúkratryggingar eða aðrir verði ekki fyrir óþörfum útgjöldum eða óþægindum.

Í sjöunda lagi er í 24. gr. frumvarpsins fjallað um kynningu á heilbrigðisþjónustu. Þar segir að við kynningu og auglýsingu skuli ávallt gætt málefnalegra sjónarmiða, fyllstu ábyrgðar, nákvæmni og sanngirni. Gert er ráð fyrir því að ráðherra setji nánar ákvæði í reglugerð um kynningu og auglýsingar heilbrigðisþjónustu. Þetta er nýmæli sem felur í sér rýmkun frá gildandi ákvæði læknalaga sem gildir um flestar aðrar heilbrigðisstéttir samkvæmt tilvísunum til þeirra laga.

Í áttunda lagi er lagt til að ákvæði um hámarksaldur þeirra sem heimilt er að reka eigin starfsstofu verði lækkaður úr 75 í 70 ár, en landlækni verði heimilt að framlengja leyfið um tvö ár í senn, þó ekki lengur en til 76 ára aldurs.

Í níunda lagi er ráðherra heimilað að ákveða með reglugerð að tilgreindri meðferð sé aðeins beitt af heilbrigðisstarfsmönnum, nánar tilgreindum heilbrigðisstéttum eða þeim sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi landlæknis. Slíkar reglugerðir skulu settar að fengnum tillögum landlæknis og umsögn viðkomandi fagfélags.

Í tíunda lagi eru skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa fyrir erlenda umsækjendur frá ríkjum utan EES-svæðisins gerð skýrari og veitt heimild til útgáfu tímabundinna starfsleyfa til þeirra.

Að lokum, hæstv. forseti, er tannsmiðum bætt við sem heilbrigðisstétt.

Hæstv. forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins og helstu breytingum frá núgildandi ákvæðum þeirra 14 sérlaga sem gilda um heilbrigðisstéttir. Ég legg áherslu á að frumvarpið felur ekki í sér verulegar efnisbreytingar heldur er fyrst og fremst um að ræða nauðsynlega samræmingu og einföldun þess flókna og að mörgu leyti úrelta regluverks sem nú gildir um heilbrigðisstéttir. Frumvarpið hefur eins og fram hefur komið verið nokkuð lengi í vinnslu og það er löngu tímabært að mati þeirra sem best þekkja að ráðist verði í fyrrgreindar endurbætur á löggjöf um heilbrigðisstarfsmenn.

Ég leyfi mér því að leggja til, hæstv. forseti, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hæstv. velferðarnefndar og 2. umr.