140. löggjafarþing — 20. fundur,  10. nóv. 2011.

innleiðing á stefnu NATO.

[10:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Mér er ekki kunnugt um að neinar ákvarðanir hafi verið teknar um að skilgreina netárás sem árás utanaðkomandi ríkis undir 5. gr. og þar með á þau öll. Hins vegar veit ég að það hafa verið umræður í einstökum hópum og meðal einstakra ríkja að breyta því með þeim hætti, en þær umræður eru a.m.k. ekki komnar á það stig að þær hafi verið kynntar ríkisstjórn Íslands.

Ég er þeirrar skoðunar að við höfum haft, a.m.k. í þessu eina tilviki þar sem hefur orðið veruleg breyting á grunnstefnu NATO, mjög ríkt samband við þingið í gegnum utanríkismálanefnd og það var ekkert kvartað yfir því á þeim tíma.

Hv. þingmaður spyr síðan hvað hafi breyst í meðferð. Það voru áherslur Íslands, m.a. á stöðu kvenna og sömuleiðis mannréttindaáherslan. Hún kom að lokum fram í fyrsta skipti.