ummæli um „óhreint fé“ í bankakerfinu.
Virðulegi forseti. Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands, hefur greint frá eftirfarandi á opinberum vettvangi. Með leyfi virðulegs forseta, vitna ég beint í hann:
„Fyrrverandi seðlabankastjóri sagði við mig í gær að ein ástæðan til þess að bankarnir starfa undir leyndarhjúp frekar en fyrir opnum tjöldum sé sú að mikið sé af óhreinu fé í umferð. Hann var að tala um Ísland. Mig langaði að segja við manninn: Hvers vegna ertu að hvísla þessu að mér? Hvers vegna skrifarðu ekki um þetta í blöðin?“
Þetta eru athyglisverð ummæli fyrir a.m.k. tveggja hluta sakir. Hér er verið að halda því fram að inni í bankakerfinu okkar sé á ferð mikið af „óhreinu fé“. Þetta verður ekki skilið öðruvísi en svo að um sé að ræða það sem kallast á lagamáli peningaþvætti og varðar að sjálfsögðu við lög. Við slíku athæfi er þung refsing og þá alveg sérstaklega ef um er að ræða peningaþvætti í stórum stíl eins og prófessorinn hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni. Hitt atriðið er að prófessorinn segir það beinlínis að þessi vitneskja liggi fyrir hjá ótilgreindum fyrrverandi seðlabankastjóra.
Nú ætla ég ekki að vefengja þessa frásögn því að eins og áður hefur verið sagt „annar eins maður og Oliver Lodge fer ekki með neina lygi“. Því verður maður að ætla að nú þegar standi yfir einhvers konar rannsókn á þessu máli. En hitt er óhugsandi að sá sem liggur inni með upplýsingar af þessu tagi komi þeim ekki á framfæri til þar til bærra yfirvalda. Ella væri hér um að ræða meinsæri af þeirri tegund að útilokað hlýtur að teljast, ekki síst frá manni sem hefur gegnt embætti seðlabankastjóra hér á landi. Því vil ég inna hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra eftir þessu: Hver eru viðbrögð hæstv. ráðherra? Telur hann ástæðu til að draga sannleiksgildi þessara orða í efa? Fer nú fram rannsókn á þessum upplýsingum, sem ég leyfi mér að kalla svo, og ef svo er, hvar fer slík rannsókn fram? Sé hún ekki í gangi, sem ég trúi varla, vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. ráðherra eftir áliti hans á því hvort ekki sé mikilvægt að farið sé ofan í svona alvarlegt mál. Þetta mál er nefnilega af því tagi að það er ekki nægilegt að um það sé skrifað í blöðin, eins og prófessorinn hvatti til. Rannsókn af opinberu tagi hlýtur að vera aðkallandi sé hún ekki nú þegar í gangi.