ummæli um „óhreint fé“ í bankakerfinu.
Virðulegi forseti. Ég hefði nú vænst skýrari svara frá hæstv. ráðherra. Ég ætla aðeins að rifja málið upp.
Hér talar prófessor við Háskóla Íslands, prófessor í hagfræði. Hann vitnar til tiltekins ónafngreinds fyrrverandi seðlabankastjóra. Með öðrum orðum, hann virðist styðja mál sitt miklum rökum. Þá er tvennt til; að við vefengjum orð prófessorsins, ég ætla ekki að gera það, eða að einhver slík rannsókn sé í gangi. Það er algerlega óhugsandi, þegar svona ásakanir eru bornar fram, þegar svona upplýsingar eru reiddar fram, að slík rannsókn sé ekki í gangi.
Nú segi ég: Ég tel að hæstv. ráðherra hafi ákveðið frumkvæðishlutverk. Hæstv. ráðherra ber að mínu mati að ganga eftir því við Seðlabanka Íslands að ummæli af þessu tagi séu rannsökuð, því að séu þau sönn er hér um mjög alvarlega hluti að ræða. Prófessorinn talar um að hér sé á ferðinni mikið af „óhreinu fé“. Hér er greinilega verið að vísa til ólögmætra (Forseti hringir.) viðskiptahátta og það er algerlega óhugsandi, eins og til þessarar umræðu er stofnað af hálfu prófessorsins, annað en að málin séu rannsökuð af þar til bærum (Forseti hringir.) aðilum og ég hvet hæstv. ráðherra til að beita sér í því máli.