140. löggjafarþing — 21. fundur,  14. nóv. 2011.

ríkisábyrgðir á bankainnstæðum.

[15:22]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég er hér með fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra um valdþurrð hans í fjárlagagerðinni hvað snertir ríkisábyrgðir og nú hvet ég ráðherrann til að segja satt vegna þess að hann taldi að hann hefði verið að segja satt í fyrra málinu.

Stjórnvöld hafa ítrekað lýst því yfir að þau muni þegar á reynir ábyrgjast innstæður í bönkunum og fjármálastofnunum hér á landi. Á grundvelli þess var meðal annars ákveðið að ríkið yfirtæki innstæður, skuldir og eignir Sparisjóðs Keflavíkur árið 2010. Þessa sögu þekkja allir, en nú hefur komið í ljós að Landsbankann, sem ætlar að innlima nýstofnaðan SpKef í Keflavík, vantar allt að 19,4 milljarða kr. sem ekki var heimild fyrir í fjárlögum 2011. Því er þessi heimild lögð fram í fjáraukalagafrumvarpi sem á að vera til 2. umr. hér í dag og þykir mér mikill flýtir á málinu því að raunverulega liggur ekkert á því að flýta fjáraukalögum svo mjög.

Telur hæstv. fjármálaráðherra að hann hafi ekki farið út fyrir valdsvið sitt þegar hann veitti Sparisjóði Keflavíkur þá valdheimild að ábyrgjast innstæður í bönkunum og jafnframt að dæla svo miklu ríkisfé inn í þann fallna banka? Fyrst voru þetta 11,2 milljarðar sem ríkið lét bankann hafa og svo seinna 8 milljarðar til eignar sem stofnfé. Telur hæstv. fjármálaráðherra að hann sé innan valdheimilda, sérstaklega í ljósi þess að þessi ákvörðun er rökstudd með ákvæði í neyðarlögunum sem sett voru 2008? Ég segi: Hvað eiga neyðarlögin að vera neyðarlög lengi? Líður hæstv. fjármálaráðherra vel með þessa aðgerð?