fjáraukalög 2011.
Virðulegi forseti. Ég kom sérstaklega upp undir liðnum Störf þingsins í vikunni til að hrósa því verklagi að samþykkt hefði verið að láta Ríkisendurskoðun fara yfir þetta mál. Af hverju? Til þess að við gætum hætt að ræða málið út frá öðru en staðreyndum.
Hér hefur komið fram, virðulegi forseti, að sú samþykkt sem ég notaði í fullri einlægni góðan tíma í til að hrósa mönnum fyrir var fullkomlega marklaus, skiptir engu máli. Hv. þm. Illugi Gunnarsson rakti þetta ágætlega áðan. Þannig að það eina sem ég hef hrósað hæstv. ríkisstjórn og ríkisstjórnarmeirihlutanum fyrir á þessu hausti verð ég því miður að draga til baka og biðjast afsökunar á að hafa hrósað mönnum fyrir.
Alvara málsins er enn og aftur (Forseti hringir.) að við erum að afgreiða eitthvað sem enginn veit hvað þýðir. (Forseti hringir.) Það er búið að koma í veg fyrir að unnið verði faglega í þessu máli.