fjáraukalög 2011.
Virðulegi forseti. Í úttekt sinni á fjáraukalagafrumvarpinu og reyndar á fjárlögum fyrir árið 2012 gagnrýnir Ríkisendurskoðun framsetningu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á frumjöfnuð meðan heildarjöfnuður er í rauninni sú tala sem gefur hvað skýrasta mynd af stöðu ríkissjóðs.
Við sem stóðum að minnihlutaáliti færðum inn þær tölur sem koma mundu fyrir kaupin á SpKef. Þá kemur í ljós að staðan er miklu verri en áður hefur verið talið.
Ég vil benda á að þegar við tölum um aukinn aga og skýrari vinnubrögð í fjárlagagerðinni eru þetta vinnubrögð sem ekki eiga að líðast. (Forseti hringir.) Ég vona að hæstv. ríkisstjórn taki orð mín til greina og breyti vinnulaginu.