afgreiðsla fjáraukalaga.
Virðulegi forseti. Hér var að klárast atkvæðagreiðsla að lokinni 2. umr. um fjáraukalög ársins 2011. Eins og glögglega kom í ljós við atkvæðagreiðsluna sveiflast til og frá hundruð milljóna ef ekki milljarða, er byggt á gögnum sem beðið hefur verið um en hafa ekki verið reidd af hendi. Nefndir hafa óskað eftir frekari upplýsingum um fleiri hundruð millj. kr. útgjöld hvað varðar endurreisn bankakerfisins, málefni Byrs, SpKef og Vaðlaheiðargöng.
Á dagskrá þingsins á miðvikudaginn er fyrirhuguð 3. umr. um fjáraukalög og atkvæðagreiðsla. Það stendur sem sagt til eftir tvo daga að ljúka lagasetningu um fjáraukalög ársins 2011. Ég óska eftir því, frú forseti, að við þingflokksformenn verðum kölluð saman og að dagskránni verði breytt vegna þess að ég held að atkvæðagreiðslan hafi gefið það (Forseti hringir.) skýrt til kynna að fjáraukalög ársins 2011 eru ekki tæk til lokaafgreiðslu í dag og verða það ekki á miðvikudaginn.