jöfnun kostnaðar við húshitun.
Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi áðan er þessi vinna á lokasprettinum núna. Á næstunni munu þessar tillögur líta dagsins ljós. Ég veit líka til þess að það hefur verið fjallað um þetta í atvinnuveganefnd. Þar er ætlunin að taka þetta til gagngerrar skoðunar þegar tillögurnar liggja fyrir eða jafnvel á næstunni og til umfjöllunar þannig að ég vænti mjög góðs samstarfs við þingið. Ég held að það þurfi svo sem ekkert að reka á eftir þeim harðsnúna hópi sem þarna er saman kominn. Þetta er honum það mikið hjartans mál.
Virðulegi forseti. Mig langaði aðeins í lokin að nefna líka að það eru, eins og fram hefur komið, um 10% landsmanna sem eiga enn sem komið er ekki kost á því að tengjast hitaveitum. En það hefur orðið töluverður vöxtur í hitaveitukerfinu á undanförnum árum, enda hafa ýmsar aðgerðir stjórnvalda síðastliðinn áratug, ekki bara þeirra sem nú eru heldur líka áður, ýtt undir frekari hitaveituvæðingu. Það má t.d. nefna stofnstyrki til hitaveitna og styrki til jarðhitaleitar og víkjandi lán til borunar og vinnslu á holum. Þar sem hitaveitu verður ekki komið við hefur verið leitað annarra leiða, t.d. með uppsetningu varmadælna en stórt verkefni á því sviði er nú til alvarlegrar skoðunar í Vestmannaeyjum. Þetta vil ég nefna til að árétta mikilvægi þess að við leitum áfram leiða til að finna hagkvæmar leiðir til húshitunar og hið opinbera kerfi þarf áfram að styðja við þá þróun. Það hefur þrengt verulega að fjármunum til þessara verkefna vegna þess að við höfum þurft að fara í niðurskurð á undanförnum árum og höfum látið beinu niðurgreiðslurnar ganga fyrir síðastliðin ár. Þetta skiptir því máli og vildi ég nefna það hér, virðulegi forseti, að við þurfum að huga að því áfram til að við getum freistað þess að tengja enn fleiri heimili í landinu beint við hitaveitu en nú eru.