þjóðgarður við Breiðafjörð norðanverðan.
Virðulegur forseti. Það væri óskandi að við í okkar fjöllótta landi værum að jafnaði á láglendisvegum. Það er hins vegar svo að við þurfum að horfast í augu við það hvernig við erum í sveit sett nánast í öllum landsfjórðungum. Ísland er meira og minna hálendi og með örmjórri landræmu eftir ströndinni, þannig að það er alltaf kúnst að komast frá einum stað á annan.
Ég vil þó segja í þessu samhengi að samgöngur að þjóðgarði og frá honum, hvort sem við erum að tala um þennan eða einhvern annan, snúast ekki bara um svokallaða heimamenn. Samgöngur snúast líka um það að allur almenningur geti notið náttúrunnar. Þess vegna er ég þeirrar skoðunar að samgöngur af þessu tagi eigi ekki eingöngu að hengja á íbúa svæðisins, heldur að það sé sameiginlegt viðfangsefni okkar allra ef við ætlum að standa með heimamönnum í því að opna þetta svæði, hugsanlega fyrir ferðamönnum og fyrir aukinni uppbyggingu — að það sé hagsmunamál okkar allra en ekki einkamál þeirra sem þar búa að þær samgöngur dugi. Til þess má töluverðu kosta.