140. löggjafarþing — 24. fundur,  16. nóv. 2011.

tilkynning um skrifleg svör.

[15:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá innanríkisráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 55, um fjölda kaupsamninga um fasteignir, frá Margréti Tryggvadóttur. Gert er ráð fyrir að fyrirspurninni verði svarað fyrir lok þessa mánaðar.