deilur við ESB um makrílveiðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir hreinskilið svar. Ég vek einfaldlega athygli á því að makrílinn bar mjög á góma í máli manna sem ég ræddi við varðandi fiskveiðikafla umsóknarinnar að Evrópusambandinu.
Mig langar enn fremur að spyrja hæstv. utanríkisráðherra að öðru máli er varðar umsóknina og fiskveiðikaflann. Menn hafa orð á að fjárfestingarkaflinn hvað varðar fjárfestingar útlendinga í fiskveiðifyrirtækjum hér á landi geti verið mjög viðkvæmur og er það mál manna að hann sé kannski einn viðkvæmasti partur umræðnanna og það eru jafnframt hugmyndir um að sá hluti fiskveiðimálsins verði ekki endilega innan fiskveiðikaflans heldur í öðrum kafla. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra út í það atriði.