Framkvæmdasjóður ferðamannastaða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Hún spyr um mjög mikilvægan hlut. Þegar við lögðum af stað með undirbúning fyrir Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, sem verður gríðarlega mikilvægur í allri uppbyggingu á ferðamannastöðum hér til lengri tíma, lögðum við upp með mun hærri og sterkari tekjustofn en raunin varð við afgreiðslu þingsins á vordögum. Á næsta ári er gert ráð fyrir því að um 48 milljónir komi inn í sjóðinn miðað við núverandi tekjustofna hans og er það að mínu mati fjarri því sem þarf í sjóðinn til að hann geti staðið fyrir þeirri uppbyggingu sem við þurfum.
Eins og hv. þingmaður nefndi erum við með nýja ferðamálastefnu. Gert er ráð fyrir að fjölgun ferðamanna hér verði mætt, vegna þess að henni fylgir ábyrgð, með því að bæta aðgengi að fleiri ferðamannastöðum til að dreifa álaginu betur og gerum við líka ráð fyrir því að fara í uppbyggingu á ferðamannastöðum sem margir hverjir hafa látið verulega á sjá vegna ágangs ferðamanna. Þess vegna er þessi sjóður gríðarlega mikilvægur fyrir þessi verkefni öll saman og ég vona að við berum gæfu til í þingsölum að taka fast á þessu máli núna í aðdraganda fjárlagagerðarinnar og þá líka á næsta ári til að tryggja þessum sjóði sterkari tekjustofn en samkomulag náðist um í þinginu í fyrra. Þessi smávægilega gjaldtaka af hverjum einasta ferðamanni sem verið er að fara í mun ekki aftra því að þeir komi hingað eins og við sjáum á fjölgun í komum ferðamanna og áætlunum fyrir næsta ár þegar gjaldtakan verður hafin. Ég tel að við getum gengið lengra og tryggt sjóðnum miklu sterkari forsendur til að bera sig.