sala hlutafjár og hlutafjárlög.
Virðulegi forseti. Ég ætla mér ekki þá dul að gerast efnahags- eða fjárfestingaráðgjafi hv. þingmanns, hann verður að ákveða sjálfur hvort hann vill kaupa í Högum eða ekki.
Hitt er ljóst að það skiptir miklu máli að endurvekja tiltrú á kauphallarviðskipti í landinu. Við eigum mikið undir því að kauphallarviðskipti séu virk, að auðvelt sé fyrir fyrirtæki að fara á markað og að tiltrú sé á þeim leikreglum sem gilda á þeim markaði. Margt þarf úrbóta við þar frá því sem áður var. Það er t.d. mjög mikilvægt að þær hertu yfirtökureglur sem við höfum sett í lög verði virtar og að menn gangi ekki á svig við þær eins og gerðist á árunum fyrir hrun. Einnig er mjög mikilvægt að meiri agi verði á framgangi fyrirtækja sem eru skráð í Kauphöll, réttindi minni hluta séu virt.
Við vinnum mjög náið með Kauphöllinni að undirbúningi þessara skráninga og við munum taka regluumhverfið til endurmats til að tryggja að réttur almennings í skráðum hlutafélögum verði tryggður, því að mjög mikilvægt er að tiltrú verði núna á kauphallarviðskiptunum, meiri og betri tiltrú en áður var, því að við viljum ekki gera Kauphöllina að musteri ræningja, eins og hún vissulega var fyrir hrun þar sem menn gátu valsað um fyrirtæki sem voru skráð almenningshlutafélög að vild án viðurlaga og án þess að gengið væri eftir því að réttum reglum og réttri samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja væri fylgt eftir.