framtíð sparisjóðakerfisins.
Virðulegi forseti. Ég er sammála því sem hæstv. ráðherra sagði við lok ræðu sinnar, ég vil ekki heldur sjá það framtíðarlandslag í fjármálaþjónustu að hér verði þrír bankar með höfuðstöðvar í Reykjavík og kannski einn lítill einkabanki. Ég tel mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa fjölbreytni í fjármálaþjónustu og sparisjóðirnir hafa sannarlega verið að tryggja það með ýmsum hætti.
Hins vegar hefur þróunin verið öll í sömu áttina. Hún hefur verið sú að á síðasta ári hefur þjónustustöðvum sparisjóðanna fækkað um helming, þær voru 47 árið 2010 en eru núna orðnar 23. Á Vestfjörðum t.d. hefur þjónustustöðvum sparisjóða fækkað úr 12 í fjórar, enginn sparisjóður er starfandi á vestanverðum Vestfjörðum utan Bolungarvíkur og Suðureyrar, enginn sparisjóður er á Vesturlandi, enginn sparisjóður á höfuðborgarsvæðinu, þar voru þjónustustöðvarnar a.m.k. sex í fyrra, og enginn sparisjóður á Reykjanesi, þar voru þjónustustöðvarnar líka sex í fyrra.
Þetta er mikið umhugsunarefni og mér finnst að þessi þróun hafi orðið án þess að það hafi kallað fram mjög mikla umræðu, að minnsta kosti ekki á Alþingi. Ég hef nokkrum sinnum reynt að taka þetta mál hér upp en það hefur ekki fengið mikla athygli, því miður. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni að mínu mati hvernig þróunin er. Við gerum fjármálamarkaðinn fátækari með þessu, við ýtum hugsanlega undir fákeppni og hverfum frá þeirri staðbundnu fjármálaþjónustu sem sparisjóðirnir sannarlega hafa staðið fyrir vítt og breitt um landið og því miður er enn verið að höggva í sama knérunn.
Nú eru áform uppi um að setja á það sem menn kalla fjársýsluskatt en er í raun og veru bara launaskattur á fjármálafyrirtæki. Hann mun bitna harðast á litlu fyrirtækjunum eins og sparisjóðunum. Það er ekki eins og þessir sparisjóðir hafi verið að fá meðgjöf líkt og stóru bankarnir sem hafa fengið útlánasöfn úr gömlu föllnu bönkunum sem þeir hafa síðan verið að meta upp og hafa þannig skapað sér svigrúm í samkeppninni, þvert á móti. Þannig geta sparisjóðirnir ekki brugðist við og þess vegna mun þessi skattur, sem er í raun og veru þegar grannt er skoðað 12,6% vegna þess að hann er ekki frádráttarbær frá skatti, (Forseti hringir.) valda því að þrengja mun að sparisjóðunum og samkeppnisstaða þeirra verður verri. Þeir munu þurfa að grípa til uppsagna og hvað gerist þá? Þá birtist okkur í hnotskurn enn á ný hin kynjaða hagstjórn ríkisstjórnarinnar sem við höfum séð í heilbrigðiskerfinu (Forseti hringir.) því að uppsagnirnar verða fyrst og fremst hjá konum.