framtíð sparisjóðakerfisins.
Virðulegur forseti. Það er einhver lenska hjá sumum þingmönnum að beina því að fjármálaráðherra að hann hafi staðið fyrir sérstakri einkavæðingu á sparisjóðunum. Það er fremur ómakleg umræða. Hæstv. fjármálaráðherra hefur staðið í því erfiða verkefni að reyna að koma fyrir með sem skaplegustum hætti ekki einkavæðingu sparisjóðanna heldur afleiðingunum af óstjórn þeirra og hruninu, því að stóru sparisjóðirnir voru náttúrlega ekki einkavæddir, þeir fóru einfaldlega á hausinn. Það gerir auðvitað að verkum að minni líkur sýnast vera á því, eftir fall Sparisjóðabankans og stóru sparisjóðanna, að auðvelt verði að endurreisa sérstakt sparisjóðakerfi, sérstaklega með það í huga að við munum auðvitað ekki verja ríkisfjármunum til að byggja upp slíkt kerfi.
Þetta skapar líka vissar áhyggjur af samkeppnisaðstæðum á markaði og þó að svona hafi farið fyrir hinum stóru sparisjóðum verðum við að muna að þó að þar hafi spilling og óraunsæi ýmiss konar sem við bíðum nú enn rannsóknarniðurstaðna um, ráðið mjög för, einkum hin síðustu ár, þá eru dæmi um litla sparisjóði þar sem vel var haldið á málum og gætilega og menn misstu sig ekki eins og í mörgum öðrum fjármálastofnunum.
Það er mikilvægt að hér séu ekki bara þrír stórir viðskiptabankar sem einoki markaðinn. Ég legg áherslu á að tryggja auðveldan aðgang fyrir nýja aðila inn á fjármálamarkað til að veita stóru viðskiptabönkunum samkeppni, það er hlutverk okkar að skapa þær aðstæður, en ríkissjóður er ekki í aðstöðu til að fjármagna uppbyggingu fyrir nýja samkeppnisaðila á fjármálamarkaði. Nóg hafa skattgreiðendur tekið á sig af kostnaði í fjármálakerfinu þó að þeir fari ekki að taka þennan leiðangur á sig líka.