140. löggjafarþing — 26. fundur,  28. nóv. 2011.

staða sjávarútvegsráðherra í ríkisstjórninni.

[15:07]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Í viðtölum í gær gagnrýndi hæstv. forsætisráðherra hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra afar harkalega. Mér er til efs að forsætisráðherra hafi nokkurn tímann gagnrýnt ráðherra í eigin ríkisstjórn jafnharkalega og hæstv. forsætisráðherra gerði í gær. Auk mjög harðrar gagnrýni tilkynnti hæstv. forsætisráðherra að sjávarútvegsmálin yrðu í raun tekin af hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Eins og komið hefur fram í umfjöllun fjölmiðla í dag og í gær er ekki hægt að túlka orð hæstv. forsætisráðherra öðruvísi en að hún sé að gera tilraun til að reka hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úr ríkisstjórn. Er hæstv. fjármálaráðherra sammála gagnrýni hæstv. forsætisráðherra? Telur hæstv. fjármálaráðherra gagnrýni hæstv. forsætisráðherra á hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra maklega? Hvort er hæstv. fjármálaráðherra sammála afstöðu hæstv. forsætisráðherra í þessu máli eða afstöðu hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem er allt önnur? Með öðrum orðum, til að ítreka spurningarnar: Hvort er hæstv. fjármálaráðherra sammála hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra? Telur hæstv. fjármálaráðherra gagnrýni hæstv. forsætisráðherra rétta og maklega?