140. löggjafarþing — 26. fundur,  28. nóv. 2011.

staða sjávarútvegsráðherra í ríkisstjórninni.

[15:12]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Þingmenn eru oft haldnir þeim misskilningi að þeir eigi líka að ráða svörum þeirra sem þeir spyrja. Það er ekki svoleiðis, hv. þingmaður. (Gripið fram í: Svar!) Þegar ég er spurður um hluti af þessu tagi kýs ég að láta ekki króa mig af með því að svara út frá afstöðu einhverra annarra. [Frammíköll í þingsal.] Ég svara þá fyrir mín viðhorf í þeim efnum. Þegar ég er spurður út í þá gagnrýni sem fram kom á helginni um málsmeðferð hæstv. sjávarútvegsráðherra get ég sagt að ég deili henni að hluta til. Ég tel að það hefði verið hægt að halda betur á þessu máli. (Gripið fram í.) Með því er ég ekki að gera orð neinna annarra að mínum, ég lýsi bara þeim viðhorfum mínum að ég er líka óánægður með að okkur skuli ekki hafa miðað betur í þessum málum. Ég held að við hefðum þurft að nota tímann betur til að samræma sjónarmið milli stjórnarflokkanna því að ég hef ekki séð að aðrir á þingi væru líklegir til að vera okkur hjálplegir í því að leiða þetta mál í farsæla höfn. [Kliður í þingsal.]