Grímsstaðir á Fjöllum.
Hæstv. forseti. Ég vil ekki tjá mig um þetta nema fá að sjá beiðni sem kynni að berast, en ég legg áherslu á að mér fyndist óeðlilegt að innanríkisráðuneytið hæfi samningaviðræður við aðila af þessu tagi. Við eigum ekki að gera það frekar en við hefjum samningaviðræður við fólk sem er að leita úrskurðar í forræðisdeilum eða um dvalarleyfi eða annað slíkt eða aðra aðila sem óska eftir kaupum af þessu tagi. Þar eigum við ekki að gera greinarmun á milli þeirra annars vegar sem hafa mikla fjármuni á milli handa og hins vegar þeirra sem hafa lítið umleikis.
Síðan hitt, ég hef heyrt þær raddir að það hefði átt að ráðleggja viðkomandi fyrirtæki hvernig það gæti komist hingað inn. Slíkar ráðleggingar hafa verið reyndar. Einum var t.d. ráðlagt að leggja sig ofan í sænska kommóðuskúffu og kaupa þannig Reykjanesið, (Forseti hringir.) orkulindirnar þar. Það er ráðabrugg sem er ekki mér að skapi.