Viðlagatrygging Íslands.
Frú forseti. Fyrirspurn mín tengist ekki beint fyrirspurninni áðan um manngerða jarðskjálfta en óneitanlega tengist umræðan um þessi mál. Það sem vakir fyrir mér er að spyrja hæstv. ráðherra um þau verkefni sem staðið hafa út af í sambandi við Viðlagatryggingu Íslands, Bjargráðasjóð og önnur þau verkefni sem komið hafa upp til að minnka tjón fólks og fyrirtækja á gossvæðunum fyrir austan. Rétt er að taka fram að margt var vel gert þegar eldgosin gengu yfir og fólk varð fyrir tjóni. Menn brugðust hratt við, bæði ríkisstjórnin og aðrar stofnanir samfélagsins, þar á meðal Viðlagatrygging. Engu að síður varð mjög fljótlega ljóst, og kom fyrst í ljós á svæðunum í Rangárþingi eystra og í Mýrdal í Eyjafjallagosinu, að þó nokkur verkefni stóðu út af og enginn virtist taka á þeim, hvorki Bjargráðasjóður né Viðlagatrygging. Ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að sett hafi verið á laggirnar á vegum ríkisstjórnarinnar nefnd þriggja ráðuneytisstjóra sem fara átti yfir þau verkefni. Þar er til dæmis verkefni sem tengist því að síðan í seinna gosinu, í Vatnajökli og þá í Skaftárhreppi, urðu menn vatnslausir. Vatnsból menguðust og farið var að bora eftir vatni. Sums staðar fannst ekkert vatn. Þó svo að í þeim tilvikum þar sem vatn finnst geti Jöfnunarsjóður sveitarfélaga tekið á 40% stuðningi við það, þá sitja þeir eftir með 100% tjón sem ekkert vatn finna.
Fleiri verkefni sem hafa staðið út af, og sum er auðvitað erfitt að leysa. Því er þessi fyrirspurn mín til hæstv. ráðherra: Hvaða verkefni eru það sem Viðlagatrygging hefur ýtt út af borðinu hjá sér? Er einhver lausn í sjónmáli hvað þau varðar? Þau heyra heldur ekki undir Bjargráðasjóð en ættu þá að heyra undir áðurnefndan ráðuneytasjóð. Í umræðunni áðan um manngerðu jarðskjálftana nefndi hæstv. ráðherra að kannski ætti að breyta Bjargráðasjóði. Fljótlega eftir að gosið varð og menn uppgötvuðu að hér væri verulegt tjón sem Viðlagatrygging mundi ekki bæta kom upp umræða, m.a. hjá hæstv. fjármálaráðherra, um fyrirspurn sem ég bar upp við hann, að kannski væri skynsamlegt að búa til aðra deild við Viðlagatryggingu sem gæti tekið á slíku. Hún væri undir öðrum formerkjum en vátryggingastarfsemi Viðlagatryggingar og tæki á slíkum málum.
Því langar mig að heyra hvað hæstv. ráðherra hefur um þessi verkefni að segja, (Forseti hringir.) þ.e. þau sem standa út af, og hvort til greina komi að breyta Viðlagatryggingu í þá veru að hún taki á slíkum tjónum í framtíðinni.