rannsókn á hönnun og framkvæmdum við Landeyjahöfn.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og svörin frá ráðherranum, sérstaklega þá skýru afstöðu sem kom fram í máli hans gagnvart því að fá nýja ferju.
Ég tek hins vegar undir að það er þetta millibilsástand sem við höfum áhyggjur af. Ég held að það sé almenn samstaða hér í þinginu og verði mikill stuðningur við ráðherrann þegar hann tekur ákvörðun um að fara af stað og afla okkur nýrrar ferju. En hvað eigum við að gera varðandi millibilsástandið? Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að fara í gegnum ferlið um hönnun og framkvæmdir á Landeyjahöfn og það sem gerðist í framhaldinu til að við getum lært af því. Það eru hlutir eins og verkkaupasamningur sem fól í sér ónýtt dæluskip sem hefur legið marga daga við bryggju þegar veður hefur verið ágætt til þess að dæla í Landeyjahöfn. Það hefur orsakað fleiri frátafir. Það þyrfti líka að svara því hver ástæðan er fyrir því að ekki skyldu hafa verið einhverjar kvaðir í samningnum um að skilyrt væri að menn væru með tæki sem dygðu til þess verkefnis sem þeir tóku að sér. Ég hef líka upplýsingar um að þegar þetta verkefni var tekið út voru hannaðar þrjár mismunandi útfærslur og bent var á að sú hönnun sem var valin væri kannski ekki sú allra besta. Þótt ekki væri mikill munur á þessum þremur möguleikum hefði annar möguleiki hugsanlega leitt til aðeins minni frátafa.
Mér hefur þótt mjög leitt hvernig skipstjórar Herjólfs hafa ekki notið sannmælis þar sem þeir hafa oft tekist á við gífurlega erfiðar aðstæður og raunar, eins og ég nefndi fyrr í máli mínu, straum sem menn virðast ekki hafa áttað sig á (Forseti hringir.) þegar þeir gerðu rannsóknir á því hvort staðsetja ætti höfnina þarna eða ekki.