140. löggjafarþing — 26. fundur,  28. nóv. 2011.

vegagerð á Vestfjarðavegi.

280. mál
[17:14]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kristján L. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að leggja fram fyrirspurn til hæstv. innanríkisráðherra um vegagerð á Vestfjarðavegi. Enn einu sinni er þessi blessaði Vestfjarðavegur hér til umræðu og ég taldi því nauðsynlegt eftir umræður hér um daginn að fá fram frá ráðherra í fyrsta lagi upplýsingar um uppreiknaða kostnaðaráætlun vegaframkvæmda á Vestfjarðavegi á:

a. öllum þeim kostum sem komu til greina í Gufudalssveit og fóru í umhverfismat,

b. kaflanum frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði, þ.e. þeim kafla sem er í umhverfismati núna eða er í þeirri vinnu og vonandi lýkur því sem fyrst þannig að bjóða megi út verk þar vegna þess að þessi kafli á töluverða peninga inni í samgönguáætlun fyrir þeirri framkvæmd sem er einir 16 kílómetrar, vonandi verður það ekki lengra,

c. heildarkostnaði við uppbyggingu og lagfæringar á Dynjandisheiði og

d. heildarkostnaði á Dýrafjarðargöngum, sem búið er að vinna lengi að og fara í gegnum hvað hönnun varðar.

Annar hluti fyrirspurnarinnar er svohljóðandi:

Hver er áætlaður heildarkostnaður við jarðgöng undir a) Hjallaháls og b) Ódrjúgsháls? Hvað yrðu þau göng löng og í hvað hæð yrðu munnar þeirra?

Það er mjög mikilvægt að fá það fram vegna þess að það skiptir miklu í hvaða hæð yfir sjávarmáli jarðgangamunnar eru og um leið auðvitað hvað göngin eru löng.

Um Hjallaháls og Ódrjúgsháls er spurt í framhaldi af þeirri yfirlýsingu sem hæstv. innanríkisráðherra gaf hér um daginn um að láta skoða Hjallaháls og við sjáum að í langtímasamgönguáætlun er gert ráð fyrir því.

Þriðji hluti fyrirspurnarinnar er:

Hvaða aðrar leiðir en þær sem kannaðar hafa verið koma til greina við lagningu láglendisvegar í Gufudalssveit og hver er kostnaður við þær?

Um þetta er líka spurt í framhaldi af þeirri umræðu sem varð hér um daginn, að ef B-leiðin kemur ekki til greina en láglendisleið er boðuð hvaða leið verði þá farin.

Virðulegi forseti. Af því að ég nefni b-leiðina, sem kannski mest hefur verið tekist á um, verð ég að segja að það er dálítið skringilegt að eina leiðin sem er inni á staðfestu aðalskipulagi Reykhólahrepps, staðfest af núverandi hæstv. umhverfisráðherra, skuli þá ekki vera tekin með í öllum þeim athugunum sem á að fara í núna við vegalagningu á þessu svæði.