vegagerð á Vestfjarðavegi.
Virðulegi forseti. Það er mjög athyglisvert að fá hér fram að leið undir Hjallaháls og Ódrjúgsháls er 3 milljörðum kr. kostnaðarsamari en sú leið sem hefur verið hvað umdeildust, um Teigsskóg. Ég hef ekki tekið endanlega afstöðu til þess hvort vegur um Teigsskóg sé endilega umhverfinu í óvil. Mjög víða á landinu hafa vegir sem liggja um skóglendi verið svæðinu á þeim slóðum mikil upplyfting og vel til þess fallnir að auka áhuga fólks á umhverfinu. Væri hægt að nefna um það nokkur dæmi. Aðalatriðið er að fá það fram frá hæstv. ráðherra hvort hann sé ekki sammála þeim sem hér hafa talað um að láglendisvegur á þessu svæði sé aðalatriðið. Það hlýtur að vera eðlileg ósk íbúa á þessu svæði að farið sé um láglendi á leiðinni milli Vestfjarða og annars hluta landsins og það væri ánægjulegt að fá það í eitt skipti fyrir öll frá ráðherra hvort hann sé ekki sama sinnis.