140. löggjafarþing — 26. fundur,  28. nóv. 2011.

vegagerð á Vestfjarðavegi.

280. mál
[17:25]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kristján L. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem hér hefur komið fram. Aðalatriðið er ef til vill í því talnaflóði sem hér kom fram, sem má segja að hefði kannski verið betra að fá skriflegt, en hvað um það, að kostnaður við þá leið sem verið er að tala um vegna þess að menn telja sig ekki geta farið hina staðfestu aðalskipulagstillöguleið, B-leiðina, í Reykhólahreppi, þ.e. fyrir ofan Teigsskóg, sé um 3 milljörðum kr. dýrari en sú leið sem hefur verið fjallað um, eins og hv. þm. Einar K. Guðfinnsson reiknaði hér út, sem er auðvitað staðkunnugri þarna en við hin sem erum kannski ekki að hugsa um þetta frá degi til dags.

Það sem kemur líka fram er að til að fullgera veg, Vestfjarðaveg 60, koma honum í nútímavegasamband, kostar 24–25 milljarða kr. ef við tökum töluna um göng undir Hjallaháls og uppbyggingu þar, Eiði í Vattarfirði, Dynjandisheiði og Dýrafjarðargöng, að við verðum þá komin með almennilegan veg á þessu svæði fyrir um 25 milljarða kr.

Ég leyfi mér að minna á að miðað við tölur, sem má kannski ekki fara með núna, um upphæðir í samgönguáætlun sem er búið að leggja fyrir stjórnarflokkana, er þetta ansi mikill peningur og tæki langan tíma að klára þetta. Þess vegna vil ég spyrja innanríkisráðherra enn einu sinni, af því að hann hefur talað um að það sé lítið til af fé, sem er alveg rétt, og það þurfi að fara varlega með það fé sem til er og nýta það vel: Ef útreikningar hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar eru réttir hérna, sem ég dreg ekki í efa, ættum þá ekki að geta sameinast um að skoða nýja leið sem er í takt við það sem úrskurður umhverfisráðherra var um, þ.e. fyrir ofan Teigsskóg, og skoða þá leið líka með tilliti til þess að hæstv. núverandi umhverfisráðherra (Forseti hringir.) hefur staðfest þá leið í aðalskipulagi Reykhólahrepps? Það er eina leiðin sem er í aðalskipulagi og það er náttúrlega dálítið hjákátlegt ef það er eina leiðin sem fer (Forseti hringir.) ekki í nýtt umhverfismat.