140. löggjafarþing — 26. fundur,  28. nóv. 2011.

stofnun þjóðhagsstofnunar.

46. mál
[17:40]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég get ekki betur skilið á orðum hv. fyrirspyrjanda en hann sé sáttur við að málið sé í þeim farvegi að Alþingi og Stjórnarráðið skoði það saman á grundvelli þeirrar tillögu sem var í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem fram kom að stofnuð yrði sjálfstæð ríkisstofnun sem starfaði á vegum Alþingis. Það er alveg ljóst að þegar áform eru uppi af hálfu Stjórnarráðsins er mikilvægt að Alþingi og Stjórnarráðið tali saman þannig að einhver skynsemi verði í þessu. Ég held að það sé ekki skynsamlegt að stofna bæði einhverja sérstaka stofnun á vegum þingsins sem fjallar um þessi mál og síðan á vegum Stjórnarráðsins.

Þess vegna er það nú, eins og fram kom í mínu máli, að ég tel rétt að fulltrúar Alþingis og Stjórnarráðsins tali saman sem allra fyrst um þetta mál. Ég get vel skilið óþreyju þingmannsins hvað það varðar að það hefur tekið töluverðan tíma að fá niðurstöðu í málið. En ég hygg að fyrirspurn hv. þm. Marðar Árnasonar gefi tilefni til að ýtt sé á þetta og veitt aðhald eins og hv. þingmaður á að gera. Ég vona að þessi fyrirspurn verði þá til þess að hraða því að niðurstaða fáist í málið og ég mun kappkosta fyrir mitt leyti að svo geti orðið.