140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

viðurkenning á sjálfstæði og fullveldi Palestínu.

31. mál
[14:21]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég komst við þegar ég horfði upp á pallana, sá konurnar sitja á fremsta bekk og litla barnið, palestínuklútana alls staðar og fána Palestínu. Ég óska ykkur öllum innilega til hamingju með þennan áfanga. Við sendum baráttukveðjur til ykkar, vina ykkar, ættingja, fjölskyldna og allra Palestínumanna. Þetta er gríðarlegur áfangi, við dáumst að baráttuþreki ykkar og fyllumst auðmýkt. Megum við öll sjá á okkar tíma og í okkar lífi frjálsa og sjálfstæða Palestínu og frið á þessu ótrúlega merkilega svæði.