140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[15:19]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst það mjög miður ef hin norræna velferðarstjórn ætlar ekki að virða kjarasamninga og samningsrétt því að samningar eru hornsteinn norræna velferðarkerfisins. Eitt það mikilvægasta sem stjórnvöld geta gert, þau sem vilja koma á norrænu velferðarkerfi, er að virða þá.

Ég er með aðra breytingartillögu sem kemur væntanlega fram í dag og hún felur í sér að ríkisframlag til stjórnmálaflokkanna verði fellt niður. Það framlag á að vera 295 millj. kr. á næsta ári. Ég er ekki á móti framlögum til stjórnmálaflokkanna heldur finnst mér það allt of hátt. Mér finnst að það eigi að lækka það og jafnframt tryggja að allir flokkar fái jafnháa upphæð, ekki bara þeir flokkar sem sitja á Alþingi heldur líka þeir flokkar sem bjóða fram í næstu kosningum, sem verður vonandi á næsta ári.