140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti 1. minni hluta fjárlaganefndar sem er að finna á þskj. 398, 1. mál þessa þings. Að því standa auk mín hv. þingmenn Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson.

Fyrst af öllu vil ég koma á framfæri þeirri skoðun minni að ég tel orðið allbrýnt að breyta fyrirkomulaginu á umræðu um fjárlög íslenska ríkisins. Ég held að við þurfum með einhverjum hætti að fríska upp á hana og skipta umræðunni til dæmis eftir málaflokkum þannig að við getum brotið umræðuna um fjárlögin upp, átt hana þess vegna á tveimur, þremur dögum þannig að það verði lifandi umræða í þinginu um innihald viðkomandi málaflokka. Viðstaddir yrðu fagráðherrar sem eru yfir tillögugerðinni til þingsins varðandi sín faglegu mál. Eins og fyrirkomulagið er held ég því fram að umræðan um íslensku fjárlögin sé meira og minna steingeld. Hún dettur niður dauð því engin lifandi skoðanaskipti eru um þau. Ég hvet forustu þingsins til að taka þetta mál til umfjöllunar og beini þeim tilmælum enn fremur til hæstv. fjármálaráðherra sem oft og tíðum og skiljanlega er önnum kafinn að ræða það líka í sínum ranni hvort við eigum ekki að reyna að efna til betri, innihaldsríkari umræðu um fjárlög íslenska ríkisins en sú umræða sem er að öllu jöfnu og ég hef verið viðstaddur fjórum eða fimm sinnum. Sagan endurtekur sig og við sjáum það bara á því hvernig þátttakan er í umræðunni, margir eru á mælendaskrá en hún er meira og minna samhengislaus. Þetta eru skilaboð frá viðkomandi þingmönnum um álit sitt á fjárlögunum en ekki þau lifandi skoðanaskipti sem þyrftu að vera á milli þingmanna og ábyrgðarmanna viðkomandi málaflokks og gæfu okkur fyllri mynd af þeirri pólitísku rökræðu sem á og þarf að vera um fjárlög íslenska ríkisins. Við sjáum það til dæmis á mætingu ráðherra við umræðuna, hún er ekki mjög mikil. Hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. iðnaðarráðherra hafa setið undir umræðunni sem hér er hafin og hafa sýnt að þau eru bæði af norðlensku bergi brotin og þola umræðuna mætavel, og greinilega ráðherra best. Það ber að þakka fyrir það.

Ég vil segja um það frumvarp sem liggur fyrir í 2. umr. að morgunljóst er að meiri hluti stjórnarliða hefur fyrir allnokkru misst tökin á því viðfangsefni að reyna að ná hallalausum fjárlögum og halda sig innan þess ramma sem fjárlögin setja hverju sinni. Besta og órækasta vitnisburðinn að þessu sinni er að finna í þeim breytingartillögum sem koma meðal annars frá ríkisstjórninni og meiri hluta fjárlaganefndar og við getum séð í því skjali sem lagt hefur verið fram. Þetta er nákvæmlega sama mynd og blasti við okkur þegar við vorum að ræða fjáraukalögin fyrir árið 2011 fyrir ekki mjög mörgum dögum.

Þær tölur og áætlanir sem lagðar voru fram í fjárlagafrumvarpi fyrir 2011 og núna í tilfelli fjárlagafrumvarps fyrir árið 2012, munu ekki ganga eftir í þeim atriðum sem lúta að hallarekstri ríkisins. Það var tiltölulega létt verk að leiða það fram að áform í fjáraukalögunum um hallarekstur á árinu 2011, sem nú stendur yfir, eru langan veg frá því að ganga eftir. Þar var gert ráð fyrir að heildarjöfnuður yrði neikvæður um 37 milljarða kr. Það er tiltölulega auðvelt að sýna fram á það með gögnum sem fjárlaganefnd hefur fengið að hann verður að lágmarki 13 milljörðum hærri en þar var lagt fram, að lágmarki. Og núna, þegar við berjum fjárlagafrumvarpið augum og þær tillögur sem koma frá ríkisstjórninni og meiri hluta fjárlaganefndar, er sami feluleikurinn í gangi. Í frumvarpinu sem lagt var fram er gert ráð fyrir 17, 18 milljarða halla á fjárlögum og í breytingartillögunum sem liggja fyrir er gert ráð fyrir því að hallinn aukist um rúma 4 milljarða kr. Hvað er þá eftir? Hvað er það sem 1. minni hluti fjárlaganefndar dregur hér fram sem brenglar þessa mynd? Jú, í fyrsta lagi eru það samningar Landsbankans og fjármálaráðuneytisins um yfirtöku Landsbankans á Sparisjóði Keflavíkur. Það liggur fyrir, og allir viðurkenna það, að lágmarksfjárhæð sem þar er undir er 11,2 milljarðar kr. Hún gæti endað í 30 milljörðum eða þar fyrir ofan. Vonandi verður hún sem lægst, en það er mat allra sem fyrir fjárlaganefnd hafa komið að þetta sé lágmarkstalan sem gera eigi ráð fyrir. Ríkisendurskoðun hefur beint þeim tilmælum til fjárlaganefndar að taka þessa fjárhæð inn til gjalda en við því hefur meiri hlutinn ekki orðið vegna þess að það samrýmist ekki þeirri mynd sem menn vilja gefa af fjárlagagerðinni og hvernig haldið er á henni.

Sjálfstæðismenn hafa haldið því fram að ástæðan fyrir því hversu erfiðlega gengur að taka á þeim efnahagslegu vandamálum sem við er að glíma, liggi í þeim meðulum sem stjórnarmeirihlutinn beitir hverju sinni, þ.e. ekki er tekið á vandanum með hvetjandi aðgerðum heldur þvert á móti. Meginlínurnar eru tvær: Hækkun skatta og niðurskurður. Það liggur fyrir, að flestra mati, að stjórnarmeirihlutinn sem ætlaði að slá skjaldborg um heimili landsins vanmat skuldavanda heimilanna. Þyrlað hefur verið upp mikilli óvissu og myrkri varðandi atvinnulífið og fjárfestingarmöguleika þar með alls kyns framgöngu sem á síðari stigum, þegar óánægjan magnast og menn gera sér grein fyrir því hvaða áhrif þessar ofboðslegu hugmyndir hafa, er dregið í land með en skaðinn er skeður.

Skattahækkanirnar sem um ræðir hafa dregið úr ráðstöfunartekjum heimilanna, þær hafa sömuleiðis dregið úr fjárfestingum. Á það hefur verið bent af ótal aðilum í íslensku þjóðfélagi, ekki eingöngu þessum „vondu atvinnurekendum“ heldur hafa samtök launþega og launþegahreyfingar um allt land lagst gegn og varað við þeim áformum sem þarna eru á ferðinni. Niðurstaðan er sú, að mati okkar sem stöndum að áliti 1. minni hluta, að hallinn á fjárlagafrumvarpinu, þegar það verður gert upp á árinu 2012, er að lágmarki 36 milljarðar kr. Það væri óskandi að svo yrði ekki, en miðað við þau áform sem frumvarpið felur í sér er þetta að okkar mati óhjákvæmileg niðurstaða. Lagt var upp með það fyrir rétt rúmum mánuði að hallinn yrði 17,8 milljarðar kr. Síðan er hamrað á því linnulaust að árangurinn sé svo mikill að við megum öll vera stolt af. Það kann vel að vera að það líti þannig út við 1. umr. og þegar það birtist almenningi fyrst en þegar þetta verður gert upp verður myndin önnur. Það eru ýmsar leiðir til að dreifa athygli fólks frá þeim veruleika sem í stefnir, meðal annars með því að draga útgjöld inn í ríkisreikning og koma því inn miklu síðar svo lítið beri á.

Við í 1. minni hluta höfum sett fram athugasemdir við þá forgangsröðun sem í frumvarpinu er. Við viljum meina að allt of lítil áhersla sé lögð á að stækka skattstofna og raunar er erfitt að koma auga á þau áform í fjárlagafrumvarpinu að vilji stjórnarmeirihlutans sé að stækka skattstofna sem þannig búi til auknar tekjur fyrir ríkissjóð. Þess í stað er haldið áfram með álögur á fólk og fyrirtæki. Sömuleiðis eru enn og aftur send ómarkviss og illa undirbúin skilaboð um niðurskurð í velferðarþjónustunni. Það samræmist lítt þeim áherslum sem komu meðal annars fram í máli hv. formanns fjárlaganefndar áðan um að núverandi ríkisstjórn bæri með réttu nafnið norræn velferðarstjórn. Hvernig má vera að menn taki sér þá nafngift í munn þegar við horfum á meðferð mála varðandi heilbrigðis- og öldrunarþjónustu? Það er að minnsta kosti enginn samhljómur með skilningi almennings á þeim tveimur hugtökum sem í þessari sjálfgefnu nafngift felst, norræn velferðarstjórn, og þeim skilningi sem stjórnarmeirihlutinn virðist leggja í þessi tvö orð. Hann er allt annar.

Við höfum lagt fram tillögur sem lúta að því að áformin um niðurskurð í heilbrigðisþjónustu og öldrunarmálum verði dregin til baka, þ.e. þær fjárveitingar sem ákvarðaðar voru í fjárlögum ársins 2011 verði látnar halda sér. Það gekk ekki svo lítið á að snúa ofan af þeirri vitleysu sem þessi mál stefndu í haustið 2010. Menn náðu þó að rétta af kúrsinn og viðurkenna að sú aðför sem gerð var að velferðarkerfinu var illa ígrunduð. Þrátt fyrir það er enn á ný reitt til höggs og menn ganga þannig fram að rétt á síðustu metrum vinnslunnar í þinginu koma fram nýjar tillögur til að reyna að bæta úr skaðanum. Tillaga okkar í 1. minni hluta lýtur að því að segja stopp. Drögum til baka þessi skerðingaráform, látum alla una við þá stöðu sem samkomulag náðist um í fjárlögum ársins 2011. Gefum okkur tvö til þrjú ár til að endurskipuleggja heilbrigðisþjónustuna og ná sameiginlegum skilningi á því hvernig eigi að veita hana, hvar eigi að veita hana, hverjir eigi að njóta hennar o.s.frv. Hættum að reyna í fjárlögum á hverju ári að móta stefnu í heilbrigðismálum þjóðarinnar til eins árs. Það er verklag sem gengur ekki upp að okkar mati.

Það vill svo til að 1. minni hluti er ekki einhver hjáróma rödd í þinginu með þessa skoðun því að álit meiri hluta velferðarnefndar Alþingis, og þann meiri hluta skipa stjórnarliðar eðli málsins samkvæmt, gefur ríkari ástæðu til að endurmeta þau áform sem birtast í fjárlagafrumvarpinu, sérstaklega hvað varðar heilbrigðis- og öldrunarmálin. Í áliti meiri hluta velferðarnefndar er ályktað að bráðnauðsynlegt sé að fyrir liggi stefna og áætlun til lengri tíma um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustunnar, innan hvaða fjárhagsramma henni er ætlað að starfa. Sömuleiðis átelja stjórnarliðar að ekki skuli liggja til grundvallar þeirri tillögugerð sem í fjárlögunum er slík vinna sem meiri hlutinn telur nauðsynlega. Í lok álitsins er lýst yfir verulegum áhyggjum af því að með þeirri fækkun starfa sem frumvarpið gerir ráð fyrir megi gera ráð fyrir því að lögbundin heilbrigðisþjónusta við almenning í landinu skerðist til muna.

Þarna er líka samhljómur með þeim sem starfa í heilbrigðisþjónustunni og ekki síður þeim sem njóta hennar og eiga töluvert undir því komið að hún gangi með öðrum hætti en hér stefnir í. Ég vil, með leyfi forseta, vitna til fréttar sem birtist á mbl.is 12. ágúst síðastliðinn, þar sem var fjallað um niðurskurðarkröfu fjármálaráðuneytisins gagnvart Landspítalanum. Þar var haft eftir forstjóra spítalans, með leyfi forseta:

„Landspítalinn þolir ekki áframhaldandi niðurskurð án þess að eitthvað láti undan í þjónustunni …

Það er komið nóg! Spítalinn mun þurfa að skera niður þjónustu og hætta að veita vissa þjónustu ef haldið verður áfram á þessari braut.“

Þetta er sagt 12. ágúst og í kjölfarið á þessari frétt, allnokkru seinna eða rúmum mánuði síðar, kom fram fjárlagafrumvarp sem gerði ráð fyrir 630 millj. kr. niðurskurðarkröfu á Landspítalann.

Tillaga er frá meiri hluta fjárlaganefndar um að létta á þessari hagræðingarkröfu sem nemur um 140 millj. kr. Tillaga 1. minni hluta gengur í þá átt að 620–630 millj. kr. hagræðingarkrafan verði dregin alfarið til baka og menn gefi sér tíma til að ígrunda það af skynsemi og gera upp við sig hvaða þjónustu Landspítalinn á í rauninni að veita og hvernig hann spilar með annarri heilbrigðisþjónustu í landinu. Sú afstaða á sér hljómgrunn meðal annarra en bara þeirra sem starfa innan þjónustunnar.

Þingmönnum barst upp úr hádegi í dag bréf frá Hollvinasamtökum líknardeildar Landspítalans, Landakots og Kópavogs, án þess að ég ætli að fara sérstaklega ofan í það mál en um er að ræða áform um að spara 50 millj. kr., og ætla ég að leyfa mér að vitna í þetta erindi, í ágætan kafla sem er áminning til okkar þingmanna um að vanda okkur við það verk sem við vinnum, sérstaklega á sviði heilbrigðis- og öldrunarmála. Ég tel ástæðu til að nefna þennan kafla bréfsins í tengslum við umræðu um fjárlagafrumvarpið og þær tillögur sem liggja fyrir. Kaflinn ber heitið Forgangsröðun, siðferði, fagmennska. Með leyfi forseta ætla ég að vitna í hann:

„Í þeim umtalsverða niðurskurði sem átt hefur sér stað í heilbrigðisþjónustu Íslendinga undanfarin þrjú ár hefur ríkt undarleg þögn um hugtakið forgangsröðun. Um miðjan tíunda áratug síðustu aldar — eftir sjö mögur ár — lét þáverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, vinna umfangsmikla skýrslu um forgangsröðun. Verkið unnu fulltrúar allra stjórnmálaflokka með aðkomu fagfólks, stjórnenda og heimspekinga. Um skýrsluna varð alger samstaða og hún var samþykkt sem þingsályktunartillaga á Alþingi. Þetta skjal verður því að teljast það viðmið sem Alþingi, ríkisstjórn og fagaðilar verða að horfa til ef og þegar grípa þarf til skerðingar á fjárframlögum.

Það heyrir fortíðinni til að fela fagfólki, svo sem læknum, að bera ábyrgð á forgangsröðun sem unnin er í kyrrþey á bak við tjöldin. Í stað slíkra vinnubragða eru lögð til siðferðileg viðmið og verklagsreglur. Þegar kemur til alvarlegrar forgangsröðunar ber að fylgja opnu og lýðræðislegu ferli. Í þessu sambandi er það því ótvíræð skylda Alþingis að forgangsraða meðvitað en taka hvorki umræðulaust við tillögum frá pólitískum ráðherra málaflokksins né einstökum embættismönnum.“

Svo mörg voru þau orð. Undir lok þessa bréfs er fullyrt að mörgum þyki nóg komið af niðurskurði á viðkvæmum sviðum samfélagsins og flestir sjái að margt annað sem ekki telst vera í forgang og ekki stenst siðferðislegan mælikvarða megi skera niður löngu á undan þeirri mikilvægu þjónustu sem hér um ræðir.

Það er alveg rétt að finna má ýmsa þætti sem við getum haft skiptar skoðanir um hvort sé rétt að setja framar fjárveitingum til heilbrigðismála eða öldrunarmála. Við nefnum í áliti okkar, 1. minni hluta, ýmis mál, bæði stór og smá eins og gengur, sem við teljum að séu þess virði að geyma frekar en að setja þau framar í forgangsröðina en fjárveitingar til heilbrigðismála. Ég leyfi mér að benda á fjármuni sem lagðir eru í saksóknara Alþingis til að reka landsdóm. Ég leyfi mér að benda á fjárveitingar sem lagðar eru í Evrópusambandsumsóknina. Sú áhersla verður æ furðulegri í ljósi atburða á því svæði að Íslendinga skuli á þessum tímum eyða mörg hundruð milljónum í það ferli. Smáatriði eins og fjölgun aðstoðarmanna ráðherra mun kosta 40 millj. kr. Þannig er hægt að tína til ótal atriði ef vilji er til þess og forgangsraða með öðrum hætti en þeim sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir.

Mér finnst raunar merkilegt að ríkisstjórnin skuli ekki hafa unnið frumvarpið betur en raun ber vitni. Það er líka sérstakt að fjárlaganefnd skuli ekki hafa gripið tækifærið og látið forgangsröðina endurspegla betur vilja Alþingis sem kemur ágætlega fram í sumum þeirra nefndarálita sem nefndinni hafa borist og er áberandi að þingmenn sem skipa þessar fastanefndir hafa allverulegar áhyggjur af ýmsum þáttum sem tilheyra þjónustuframboði ríkisins eins og það hefur verið á undanförnum árum.

Við höfum kallað eftir því í 1. minni hluta og sett fram hugmyndir um að í sameiningu verði tekist á við það verkefni að endurskipuleggja þjónustuframboð ríkisins með það að meginmarkmiði að fá meiri þjónustu fyrir minna fé. Við höfum sett fram ákveðnar hugmyndir í þeim efnum og teljum að meðan ekki er gerð áætlun til lengri tíma um þá þjónustu sem ríkinu er ætlað að veita verði svokallaður niðurskurður, sem unninn er innan fjárlaga á hverju ári, ekki nægilega markviss og skili ekki því sem til er ætlast heldur valdi meiri skaða en gagni þegar upp er staðið. Við leggjum áherslu á það í nefndaráliti okkar að hafist verði handa við þetta verkefni og að menn gefi sér þar af leiðandi þann tíma sem þarf til þess að vinna hlutina og móta stefnuna áður en hrapað verður að ákvörðunum. Við viljum enn fremur, og leggjum það til, að þetta verk verði unnið með sambærilegum hætti og sú skýrsla og þingsályktunartillaga sem ég vitnaði til áðan var unnin, að það verði gert í samstarfi þeirra sem veita þjónustuna, nýta þjónustuna, þingsins og sérfræðinga sem til þessara mála þekkja hverju sinni. Að lokinni slíkri vinnu er Alþingi fyrst fært um að taka nægilega vel upplýsta ákvörðun á þeim viðkvæmu sviðum sem við erum að taka til við fjárlagagerðina.

Ég held að það væri raunar hið besta mál og sjálfsagður hlutur að sýna þeim tveim málaflokkum þá virðingu og þá nærgætni að gera hlé í þeim verkum sem staðið hafa þar yfir núna í þrenn fjárlög og gefa okkur þann tíma sem þarf til þess að ná meiri sátt um þær áætlanir sem menn vilja koma fram með og birtast eiga í fjárlögum ríkisins hverju sinni.

Varðandi þá tekjuspá sem í frumvarpinu er að finna byggir fjárlagafrumvarpið, eins og kom fram við 1. umr. þess, á þjóðhagsspá Hagstofunnar. Það var gagnrýnt við framlagningu frumvarpsins í byrjun október sl. að það tæki ekki með neinum hætti mið af öðrum hagspám, m.a. frá Seðlabanka Íslands, varðandi ýmsar forsendur fyrir þróun efnahagsmála á næsta ári. Þá var vísað til þess að það væri því sem næst lögbundin skylda að fjármálaráðuneytið færi með þær forsendur sem Hagstofan hefði í spá sinni í fjárlagagerð hvers árs. Það vekur því óneitanlega furðu þegar sú hagspá sem lögð var fram 24. nóvember sl. er borin saman við spá Hagstofunnar frá því í júlí sl. að sjá hvaða áhrif breytingar á spá Hagstofunnar hafa á fjárlagafrumvarpið. Flestir mælikvarðar sem þar um ræðir, í spánni, breytast til hins verra frá júlíspánni. Ég nefni sem dæmi að einkaneysla er áætluð dragast saman um 0,3%, samneyslan um 0,1%, því er spáð að landsframleiðslan, vöxturinn í þjóðfélaginu, dragist saman um 0,7% frá því sem áður var lagt upp með í fjárlagafrumvarpinu. Sömuleiðis er gert ráð fyrir því að atvinnuleysi verði hátt í 0,5% meira í nóvemberspá Hagstofunnar en í þeirri spá sem hún lagði fram í júlí.

Miðað við það hvernig tekið var á breyttri þjóðhagsspá fyrir fjárlagagerð 2011 átti ég von á því að þær breytingar sem kæmu fram frá ríkisstjórninni fyrir 2. umr. á grunni nýrrar þjóðhagsspár yrðu allt aðrar og meiri en raun bar vitni. Tillögur ríkisstjórnarinnar til fjárlaganefndar fyrir 2. umr. gera ráð fyrir meiri tekjum en frumvarpið fól í sér og sömuleiðis er aukið í gjöldin. Ég skal verða fyrstur manna til að viðurkenna það að mér þótti undarlegt hver viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru við því að spáin sem nýtt var til grundvallar frumvarpinu við 1. umr. versnaði í öllum meginatriðum, horfurnar versnuðu í öllum meginatriðum miðað við spána frá 24. nóvember, og að það kæmi fram sem bati í þeim tillögum sem lagðar voru fram af ríkisstjórninni. Mér þótti mjög undarlegt að upplifa þetta.

Ég vil sérstaklega nefna hérna, einfaldlega vegna þess að það tengist þeim áherslumun sem er í stjórnmálum á Íslandi varðandi efnahagsmál, að spá Hagstofunnar frá því í júlí um atvinnuleysi gerði ráð fyrir samdrætti, að atvinnuleysi færi úr 7% í 6%. Því miður gefur spá Hagstofunnar frá því núna í nóvember ekki tilefni til sömu bjartsýni og var í upphaflegu spánni fyrir árið 2011. Nú spáir Hagstofan því að atvinnuleysi verði meira á árinu 2012 en reiknað var með þegar hún spáði fyrir um þá þætti í júlí. Til þess liggja ýmsar ástæður, en það er hins vegar úrslitaatriði að atvinnustig vaxi. Við eigum þess kost að draga sem mest úr atvinnuleysi. Hver einstaklingur sem er á atvinnuleysisskrá er að öllu leyti í gjörsamlega óviðunandi stöðu ef hann vill vinna og að sama skapi, ef við tengjum það ríkisfjármálum, er gríðarlega kostnaðarsamt að standa undir því. Ef ég man rétt má gera ráð fyrir því að hver einstaklingur sem losnar af atvinnuleysisskrá og kemst til vinnu, miðað við meðallaun í landinu, létti kostnað samfélagsins um sem nemur 4,6 millj. kr. á ári. Það eru umtalsverðir fjármunir þegar við glímum við þann vanda sem við höfum í rauninni rætt í þrjú til fjögur ár.

Að mati þeirra sem um þau mál sýsla sérstaklega er gert ráð fyrir því að sú þjóðhagsspá sem hér liggur fyrir þurfi í öllum meginatriðum að ganga upp til þess að við náum rétt að halda í horfinu en þó tæplega það. Vissulega er spáð vexti í landsframleiðslunni, en að flestra mati sem til þekkja dugar hann ekki einu sinni til þess að mæta þeirri nýliðun sem árlega verður á íslenskum vinnumarkaði. Það er ekki mikil ástæða til bjartsýni í þeim efnum sem ég fjallaði um áðan.

Samkvæmt Hagstofunni og hennar spá má gera ráð fyrir, og er það gert, að hagvöxtur verði einkum drifinn áfram af einkaneyslu og má þá spyrja sig hversu mikil innstæða er fyrir slíku til lengri tíma. Ég fullyrði að hún er ekki mikil ef við ætlum að keyra einkaneysluna áfram og láta hana drífa hagvöxtinn. Einkaneyslan byggir á úttekt á viðbótarlífeyrissparnaði sem var óvenjumikil og stefnir í að verða óvenjuhá á árinu 2011, um 25 milljarðar. Strax á árinu 2012 er spáð að úttektin verði á bilinu 12–15 milljarðar. Að auki verða miklar almennar launahækkanir það ár og auknar vaxtabætur. Jafnframt hafa menn áhyggjur af því að fólk er hætt að greiða af lánum og því þegar frystingunni verður aflétt. Þessir þrír stóru og miklu þættir leika stórt hlutverk í því að drífa áfram einkaneysluna og vara ekki til eilífðar, eins og þeir eru byggðir upp. Það er sárt til þess að vita að ekkert eða sáralítið af því sem hér hefur verið nefnt stafar af aukinni fjárfestingu eða framleiðni í hagkerfinu.

Það þarf í rauninni ekkert að velta sér mikið upp úr þeim ástæðum sem liggja að baki því að fjárfestingar eru ekki að mati 1. minni hluta nægilega miklar til að við getum vænst þess að hagvöxturinn aukist af þeirra völdum á næstunni. Óumdeilt er að pólitískar áherslur í þeim efnum eru ærið misjafnar svo að ekki sé meira sagt og pólitískar átakalínur liggja þar víða, ekki eingöngu á milli stjórnar og stjórnarandstöðu heldur sjáum við þess stað, ekki síst þessa dagana, að átakalínur innan stjórnarmeirihlutans eru að skerpast til muna frá því sem verið hefur. Átökin hafa valdið ákveðinni óvissu, sérstaklega í því sem lýtur að nýrri fjárfestingu í landinu. Það er mjög brýnt að menn láti af þessu háttalagi og reyni að hafa miklu meiri festu og öryggi í stjórn landsins og ákvarðanatöku en verið hefur. Ég skal vera fyrstur manna til að viðurkenna að það er ekki ýkja auðvelt að byggja stjórnarmeirihluta á einum einstaklingi. Þetta kann að verða snúið og kemur þá í bakið á almenningi í landinu með þeim hætti sem okkur hefur birst á undanförnum vikum og missirum, og það er illt.

Skattahækkanir hafa vissulega skilað ríkissjóði tekjum, ég held að þær séu metnar upp á tæpa 10 milljarða kr., en engu að síður hafa skatttekjur ríkisins dregist mun meira saman en útgjöldin. Frá árslokum 2007 til ársloka 2010 hafa tekjurnar dregist saman þrátt fyrir skattahækkanir upp á 150 milljarða, ef ég man rétt, og á sama tíma hafa útgjöld aukist um 87 milljarða. Þetta er baneitruð blanda sem mun aldrei geta gengið upp til lengri tíma og er raunar ómöguleg í því formi sem núverandi stjórnvöld hafa rekið ríkissjóð. Hann hefur verið rekinn með miklum halla undanfarin ár sem er ekki í samræmi við samstarfsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hvort heldur við erum að ræða frá hausti 2008 eða þeirri endurskoðun sem fram fór síðar. Þá varð samkomulag aðila um að ríkisfjármálin yrðu komin í jafnvægi árið 2012 og að skuldasöfnun yrði þá stöðvuð. Því miður, eins og hefur komið rækilega fram í máli mínu, hefur þetta ekki gengið eftir. Ef við horfum bara til þessa árs var hallinn á fyrstu sex mánuðunum 37 milljarðar. Ég nefndi áðan tölur úr fjáraukalögum ársins 2011 og samkvæmt þeim eykst hallinn þegar líður á árið, m.a. og sérstaklega vegna launahækkana sem samið var um með aðild ríkisins á almennum vinnumarkaði og enn fremur vegna þess að ekki hefur verið brugðist við með raunhæfum aðgerðum.

Núverandi ríkisstjórn hefur aftur á móti boðað að það muni taka mun lengri tíma en áður var gert ráð fyrir að koma ríkissjóði á réttan kjöl. Við erum enn ekki farin að sjá þær áætlanir en óumdeilt er að með þessum hætti er ríkisstjórnin að ýta ákveðnum vanda á undan sér. Hallareksturinn leiðir óhjákvæmilega til skuldasöfnunar og um leið til þess að stærri hluta af tekjum ríkissjóðs verður varið til að greiða vexti af lánum. Allir sjá og skilja að þeim fjármunum sem fara til vaxtagreiðslna verður ekki varið til þjónustu við borgarana.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu nú í lok október rúmum 1.400 milljörðum kr., um 86,5% af landsframleiðslu ársins. Sömuleiðis kemur fram í fjárlagafrumvarpinu og greinargerðinni með því að gert er ráð fyrir því að hrein staða ríkissjóðs versni um 40 milljarða á árinu 2012. Þetta er þróun sem allir geta verið, og eru að ég held, sammála um að sé tímabært að stöðva. Það væri óskandi að við fengjum að sjá áætlun sem stefndi að því.

Ég vil nefna ákveðna þætti sem lúta að framkvæmd og vinnu með fjárlögin. Við í 1. minni hluta fjárlaganefndar leggjum fram tillögu um viðbót við 6. gr. fjárlaga sem er svokölluð heimildargrein fjárlaga þannig að við hana bætist nýr liður. Grunnurinn undir þá tillögu sem við leggjum fram er sá að Ríkisendurskoðun hefur sett fram skýr sjónarmið í þessum efnum, þingmenn hafa í gegnum tíðina talað fyrir því að þingið hafi eitthvað um það að segja með hvaða hætti skuldbindingar ríkissjóðs verði til á grunni þeirra heimilda sem veittar eru í 6. gr. fjárlaga. Tillagan er svohljóðandi, með leyfi forseta:

Fjármálaráðherra er heimilt að „vinna að kaupum og sölu eigna ríkissjóðs á árinu 2012 í samræmi við eftirfarandi skilyrði: Áður en heimild er nýtt skal fjárlaganefnd berast umsókn um heimild til útgjalda samkvæmt tiltekinni heimildargrein. Umsókninni skal fylgja rökstuðningur þar sem m.a. kemur fram hvaða fjárhæðir er um að ræða og hver áhrif eru á fjárlög og efnahag ríkissjóðs. Fjárlaganefnd skal taka afstöðu til umsóknar fjármálaráðherra innan sjö virkra daga frá því fullgild umsókn berst nefndinni.“

Við höfum örugglega haft misjafnar skoðanir á því með hvaða hætti á að nálgast þetta en samhljómur var um það í fjárlaganefnd Alþingis, þegar hún vann og ályktaði um þá skýrslu sem Ríkisendurskoðun gerði um ríkisreikning ársins 2009, að það væri nauðsynlegt að þingið setti notkun á heimildargrein fjárlaganna einhver skýr mörk. Hér er á ferð tillaga 1. minni hluta til að skýra þau mörk og ég vænti þess að meiri hluti fjárlaganefndar, í ljósi þeirrar samstöðu sem ríkti um málið í nefnd, sé tilbúinn að ræða með hvaða hætti við getum aukið aðild þingsins að því að ákvarða hvernig heimildin verður nýtt. Þrátt fyrir að Ríkisendurskoðun hafi á undanförnum árum ítrekað gert athugasemdir og gagnrýnt það verklag framkvæmdarvaldsins sem ég lýsti er enn að finna mjög opnar heimildir í fyrirliggjandi frumvarpi. Athugasemdir Ríkisendurskoðunar og fjárlaganefndar hafa beinst að því að unnt sé á grundvelli heimildargreinarinnar að stofna til gríðarlega mikilla fjárskuldbindinga án þess að ákvarðanir varðandi þær hafi verið nægilega kynntar fyrir þingmönnum, hvað þá ræddar á Alþingi. Af þeim sökum meðal annars tengist þetta umræðunni um afkomu og niðurstöðu í reikningum ríkisins því að raunveruleg afkoma og niðurstaða er ekki sýnd vegna þess að þessi 6. gr. heimild er mjög ógegnsæ. Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að ég vil tengja það umræðunni um yfirtöku ríkisins á Sparisjóði Keflavíkur og samningum fjármálaráðuneytisins við Landsbankann um það mál. Sömuleiðis má minna á að ríkissjóður á stofnfé í einum fimm sparisjóðum, eða átti á árinu 2010.

Heimildin varðandi Sparisjóð Keflavíkur er sú að fjármálaráðherra sé heimilt að ganga til samninga við Landsbankann um uppgjör og greiðslur. Engar fjárhæðir eru nefndar í því sambandi í heimildargreininni heldur er hún bara opin og eins og ég hef rakið er mat þeirra sem um þessi mál sýsla að kostnaðurinn geti verið umtalsverður, þ.e. á bilinu 11–30 milljarðar kr. Það er að mínu mati óásættanlegt að Alþingi hleypi slíku máli í gegn án þess að fyrir liggi eitthvert mat á kostnaðinum varðandi það og þingið þurfi þá að taka afstöðu til þess máls. Þetta er ekki feitur tékki, eins og stundum er sagt og auglýst af einhverju tryggingafélagi, þetta er opinn tékki sem framkvæmdarvaldið eða fjármálaráðuneytið hefur haft til þess að ávísa greiðslum á ríkissjóð.

Ég get ekki látið hjá líða í umræðu um fjármál ríkisins að nefna eitt tiltekið atriði sem lýtur að fjármálum opinberra aðila. Það eru fjármál sveitarfélaga. Sú umræða sem við höfum átt um fjármál þeirra er raunar alveg með ólíkindum vegna þess að þau verða oft hálfgerð afgangsstærð í umræðunni. Miklar umræður hafa verið um aukaframlag í jöfnunarsjóð. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir sérstöku aukaframlagi til þeirra sveitarfélaga sem verst eru sett fjárhagslega, og hver er skýringin á því í fjárlagafrumvarpinu? Ég bið hv. þingmenn að taka eftir skýringunni. Skýringin á aukaframlaginu í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er sú að það sé sett inn vegna áhrifa bankahrunsins á skuldastöðu þeirra sveitarfélaga sem um er vélað og að framlagið eigi að falla niður í tveimur áföngum, 2012 og 2013. Þetta segir í frumvarpinu. Aukaframlag í jöfnunarsjóð hefur tíðkast í mörg herrans ár og hefur aldrei fyrr en nú verið merkt bankahruninu. Ég held því fram að þetta sé afsökun fyrir því að afnema það í stað þess að ræða hið raunverulega vandamál. Hver eru verkefni sveitarfélaga og hvaða fjármunum hafa þau úr að spila til að ráða við þau? Það er óumdeilt að mati þeirra sem til þekkja að ríkið hefur undanfarin ár velt verkefnum yfir á sveitarfélög án þess að þeim hafi fylgt lögbundnir tekjustofnar.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur markað ákveðna stefnu í þessum efnum og metið það sem svo að miðað við þau verkefni sem sveitarfélögunum er ætlað að sinna sé þörf fyrir u.þ.b. 1.200 millj. kr. aukaframlag árlega. Ef ríkisvaldið ætlar að draga úr þessum kostnaði ofan á aðrar tilfærslur sem það hefur velt yfir á sveitarsjóði landsins, ef ríkisvaldið ætlar að gera það sem hér er lagt til, er það brot á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga sem menn hafa hingað til státað af að væri eitthvert það albesta í veröldinni. Þetta er ekki vinnulag sem getur gengið með þeim hætti sem hér er lagt upp með. Það hefur ríkt samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um þetta framlag, það var fyrst og fremst sett inn til að rekstrarlega veik sveitarfélög gætu ráðið við þá þjónustu sem þeim var ætlað að veita íbúum sínum. Með því sem hér er lagt til er verið að draga úr möguleikum þessara sveitarfélaga til að veita lögbundna þjónustu en ekki síður er ætlunin sú að fjárhagslega veik sveitarfélög taki þátt í því að draga önnur fjárhagslega veik sveitarfélög að landi í verkefnum sínum. Það sjá allir hvernig það endar, það endar með þeim hætti að það ræður enginn við nokkurn skapaðan hlut sem honum er ætlað að gera. Og þá er verr af stað farið en heima setið.

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að menn geti og ætli að fara með fjármál sveitarsjóða landsins eins og raun ber vitni án þess að ræða það sameiginlega á vettvangi sveitarfélaganna hvernig þeim verði ætlað að mæta áhrifunum af því. Eins og við þekkjum öll hafa sveitarfélögin með höndum bróðurpart þeirrar þjónustu sem íbúar landsins njóta, þótt ekki væri nema fyrir grunnskóla og félagslega aðstoð. Ég fullyrði að á sumum svæðum, og þá sérstaklega fjárhagslega veikra sveitarfélaga, er þessum þjónustuþáttum stefnt í voða vegna þess sem hér er lagt fram. Það er illt að mínu mati og ekki í neinu samræmi við þær áherslur sem ég þykist í það minnsta hafa greint hjá þingmönnum sem hafa tjáð sig um þessi efni. Það er raunar í takt við margt annað í því frumvarpi sem fyrir okkur hefur verið lagt.

Það er hægt að nálgast ýmsa þætti í frumvarpinu en þegar maður fer að rýna í þá hafa þeir verið misvel ígrundaðir. Við sjáum það ágætlega, eins og ég nefndi í upphafi máls míns, á þeim breytingartillögum sem meiri hluti fjárlaganefndar leggur til, upp á rétt rúma 4 milljarða kr., að flest þeirra viðfangsefna sem þar um ræðir má segja að hafi í rauninni legið fyrir og hefðu átt að vera mönnum ljós við 1. umr. fjárlaga. Þau hefðu átt að liggja fyrir með miklu meiri fyrirvara.

Eins og kom fram í framsögu hv. formanns fjárlaganefndar er verið að bæta við ýmsum verkefnum sem vekja í það minnsta spurningar. Ég ætla að staldra fyrst við heilbrigðismálin þó að ég sé búinn að tala langt mál um þau. Í máli hv. formanns kom fram að um þær tillögur sem þar liggja fyrir hefði verið haft náið samráð við starfsmenn, stjórnir o.s.frv. viðkomandi heilbrigðisstofnana. Það hefur samt ekki verið við allar stjórnir eða starfsmenn heilbrigðisstofnana því að mér hefur verið tjáð af stjórnarmönnum að óskað hafi verið eftir fundum sem ekki hafa enn verið haldnir. Að mati okkar í 1. minni hluta ganga þær tillögur, sem þó eru gerðar og ber vissulega að virða, ekki nægilega langt í þá átt sem nauðsynlegt er til að friður skapist um þetta svo að rými gefist til að vinna málið til enda.

Það sama má segja um samráðið um sóknaráætlun 20/20 og þau verkefni sem eru í tillögum frá ríkisstjórninni og byggja á þeirri vinnu. Farið var um allt land og svokallaðir heimamenn, þ.e. á vegum landshlutasamtakanna, beðnir að forgangsraða verkefnum. Fyrir austan veit ég að voru 11 verkefni og var mikil vinna lögð í þau, ótal fundir, ferðir, símtöl, samtöl, mikill kostnaður. Hvað hefur verið gert með þetta? Akkúrat ekki neitt. Það er ekkert farið að þeim tillögum sem komu út úr þessu mikla samráði. Hvaða skilaboð er verið að senda fólki sem tekur þátt í slíkri vinnu? Fínt að halda ykkur uppteknum við eitthvað sem skiptir ekki nokkru máli. Tiltrú þeirra sem vinna með stjórnvöldum og verða vör við slík viðbrögð verður engin á þau sömu stjórnvöld og óskuðu eftir „góðu samráði“. Þetta eru ekki að mínu mati góð vinnubrögð því að fólk spyr sig, eins og sagt var við þingmenn í tölvupóstum í dag: Til hvers var barist ef baráttan skilar engu öðru en því að menn séu lamdir niður alveg linnulaust ár eftir ár? Það dregur úr fólki þrótt og trú á þann málstað sem það vill vinna fyrir. Það upplifir að það hafi verið haft að ginningarfífli.

Það eru líka atriði í frumvarpinu sem vissulega ber að nefna og virða. Það er verið að styrkja grunn undir störf þingsins, m.a. með því að gera nefndarmönnum færara að vinna að þeim verkefnum sem þeim hafa verið falin. Fjárskorti umboðsmanns Alþingis er mætt. Verið er að jafna námskostnað nemenda. Það er verið að auka í ferðasjóð íþróttafélaga. Allt eru þetta góð málefni, ekki stórar upphæðir en safnast þegar saman kemur. Svo eru aftur aðrir þættir sem ég gæti endalaust farið yfir sem ég tel að séu illa ígrundaðir og þurfi miklu dýpri umræðu en fram hefur farið.

Ég nefni eitt mál sérstaklega: Það eru aukin fjárframlög í endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Ég ætla að leyfa mér að hafa dálítið stór orð um þann texta sem fylgir tillögu meiri hluta fjárlaganefndar í þeim efnum. Textinn kemur frá fjármálaráðuneytinu en meiri hluti fjárlaganefndar hefur gert hann að sínum þar sem fullyrt er að iðnaðarráðuneytið brjóti lög. Það er í mínum huga dálítið þung ásökun og þess vegna bið ég hv. formann fjárlaganefndar að hlýða á orð mín. Það er töluvert þung ásökun, en í þeim texta sem kemur frá fjármálaráðuneytinu og meiri hluti fjárlaganefndar gerir að sínum og lagður er til grundvallar tillögugerð meiri hluta varðandi endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, um að hækka endurgreiðslur úr 153 milljónum upp í 400, er fullyrt að iðnaðarráðuneytið brjóti lög. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Eins og fram kemur í skýringum við tillögu við 2. umr. um fjáraukalagafrumvarp um 120 millj. kr. hækkun á fjárheimild ársins 2011 hefur iðnaðarráðuneytið á fyrstu þremur ársfjórðungum þessa árs þegar greitt út þá fjárhæð í framleiðslustyrki umfram fjárveitingu fjárlaga 2011 og afgangsheimild frá fyrra ári.“

Þetta stenst ekki þau lög sem við í fjárlaganefnd og öðrum nefndum hömrum á við forstöðumenn stofnana að fylgja. Síðan kemur fram í þessum sama texta:

„Skuldbindingar vegna þessara verkefna verði þar með í kringum 700 millj. kr. á árinu eða 450% hærri en fjárveiting fjárlaga ársins.“

Þetta kallar á að menn endurskoði þessi lög. Fyrir liggur vilji menntamálaráðherra og iðnaðarráðherra til þess að auka í. Sú pólitíska stefnumörkun á eftir að fara fram, en alvarleiki þessa máls liggur í því að hér er texti settur á blað frá fjármálaráðuneytinu, sem hefur yfirumsjón með fjárreiðum ríkisins í Stjórnarráðinu, þar sem iðnaðarráðuneytinu er borið á brýn að brjóta lög. Ég held að það sé full ástæða til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins taki þetta til umfjöllunar.

Ég nefndi áðan að mér þætti margt ómarkvisst í vinnslu þessa frumvarps. Breytingartillögur sem koma bæði frá ríkisstjórninni og meiri hlutanum bera það sumar hverjar með sér að ekki hafi verið vandað nægilega til verka og oft og tíðum fær maður á tilfinninguna að vitað hafi verið að forsendur í frumvarpinu standist ekki.

Ég nefni sem dæmi að þær tillögur sem ég hef gert að umtalsefni varðandi heilbrigðismál komu ekki fram í fjárlaganefnd fyrr en sólarhring áður en málið var tekið þaðan út. Þá höfðu þær ekki verið kynntar eða ræddar í velferðarnefnd þingsins.

Ég vil einnig nefna áform um fangelsi sem var tekið út úr tillögunum á úttektarfundi. Það liggur þá fyrir að þau áform sem innanríkisráðherrann hefur um byggingu fangelsis njóta ekki þingmeirihluta í því formi sem hann kynnti þau. Það liggur heldur ekki fyrir, þrátt fyrir vilyrði innanríkisráðherra um að gefa við því skýr svör í ágúst sl., hvaða leiðir verða farnar til að fjármagna þessar framkvæmdir ef af verður. Gerð var tillaga um mörg hundruð milljóna útgjöld til Fjármálaeftirlitsins og umboðsmanns skuldara, en tillagan um aukin útgjöld til umboðsmanns skuldara kom fram á síðustu metrum vinnslunnar í fjárlaganefnd. Hún byggði á upplýsingum sem öllum áttu að vera kunnar áður en fjárlögin komu fram. Sama á við um Fjármálaeftirlitið, engar nýjar upplýsingar bárust ráðuneytinu sem um þau mál sýslaði heldur lá fyrirstaðan í því að veita Fjármálaeftirlitinu þær heimildir sem um var beðið. Ég styð í rauninni þær athugasemdir sem gerðar voru í þeim efnum en ekkert nýtt kom fram við yfirferð fjárlaganefndar um rökstuðning fyrir þessum auknu fjárveitingum.

Ég vil nefna það líka hérna að í frumvarpinu eru áform um að lífeyrissjóðir landsmanna greiði 1.400 millj. kr. í ríkissjóð svo að hann geti staðið við loforð sín um sérstaka vaxtaniðurgreiðslu til þeirra sem skulda húsnæðislán. Það er ekkert fast í hendi varðandi þessar greiðslur. Ekki hefur enn tekist að ljúka samkomulagi vegna þessara greiðslna fyrir árið 2011, hvað þá fyrir árið 2012. Það furðulega í þessu máli er svo að stærsti greiðandi þessara 1.400 milljóna verður ríkissjóður vegna skuldbindinga sinna varðandi Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.

Enn einn blekkingaleikinn vil ég nefna sem er lækkun vaxtagjalda um 591 millj. kr. Látið er líta svo út að þetta sé einhver gríðarlegur bati í rekstrinum en þetta er feluleikur til að forða því að þessi gjöld komi fram á rekstrarreikningi. Þetta er gert þannig að útgáfa óverðtryggðra ríkisbréfa lækkar á árinu 2011 en á móti hækkar útgáfa verðtryggðra bréfa og af því að verðbæturnar fara um höfuðstólinn er með þessum hætti einungis verið að hlífa rekstrarreikningnum við gjaldfærslunni. Þar af leiðandi virðast gjöld ríkisins vera rúmum hálfum milljarði lægri en þau í reynd eru.

Þannig væri hægt að tína til ýmislegt sem þessum málum tengjast og væri leikur einn að taka upp ef vilji væri til þess.

Ég vil undir lok máls míns, forseti, minna á þau atriði sem lúta að efnahagstillögum Sjálfstæðisflokksins sem er að finna á þskj. 142, um breytingar í stefnu í efnahagsstjórn landsins. Formaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir þessum tillögum fyrr í mánuðinum. Þar eru gerðar tillögur sem lúta að leiðum út úr þeim vanda sem við er að glíma. Í því sambandi leggjum við meðal annars fram og munum endurflytja tillögu um það að ríkissjóður taki út geymdan skatt í séreignarsjóðum lífeyrissjóðanna. Má ætla að sú fjárhæð sem þar er geymd í skatti nemi í dag um 83–84 milljörðum kr. Sveitarfélögin eiga þar inni rúma 40 milljarða og ef þetta yrði regla sem gilti áfram má gera ráð fyrir að ríkissjóður fengi um 8,5 milljarða árlega í gegnum skatt sem þennan.

Ég vænti þess að þegar menn hafa farið í gegnum efnahagstillögur þingflokks Sjálfstæðisflokksins verði nokkuð ljóst að í þeim er boðið upp á annan valkost við stjórn efnahagsmála en núverandi stjórnarmeirihluti ber fram. Í okkar huga er óumdeilt, og við teljum okkur hafa fært fyrir því þokkalega óyggjandi rök, að sú efnahagsstefna sem rekin er af hálfu núverandi ríkisstjórnar skilar ekki þeim árangri sem vænst hefur verið. Því er mjög mikilvægt að skipta um kúrs svo að skútan steyti ekki á skeri og áhöfnin öll (Forseti hringir.) líði fyrir það.