fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson kallar til mín að vera rólegur og ég ætla svo sem að reyna það (Gripið fram í.) þó að kannski sé ærin ástæða til að æsa sig yfir mörgu í þessu frumvarpi. Við erum hér að ræða við 2. umr. fjárlögin fyrir árið 2012. Í ljósi ræðu hv. þm. Sigmundar Ernis Rúnarssonar um árangur í ríkisfjármálum — ég ætla ekkert að deila við hv. stjórnarþingmenn um tölur í því sambandi — vil ég vara við því, eins og kemur fram í nefndaráliti okkar í 1. minni hluta, að því miður er ákveðinn halli innbyggður í fjárlögunum sem við vitum af en forðumst kannski að tala um. Það má segja að hallinn á næsta ári verði í kringum 21 milljarð en hann getur hæglega orðið tvöfalt meiri. Ég vona auðvitað að svo verði ekki, að einhver teikn muni snúast á sveif með okkur þannig að sú útgjaldaaukning sem þar er komi ekki að fullu inn í fjárlögin.
Það verður mjög erfitt að ná þessum skrefum nema fara í ákveðna atvinnuuppbyggingu til að ná að rétta af fjárlagahallann. Það er búið að skattpína þjóðina, fyrirtækin, heimilin, fólkið, eins og hægt er. Ekki verður gengið lengra í þeim efnum með öllum þeim skelfilegu afleiðingum sem það hefur haft. Að mínu viti er ein leið út úr þessu, það er að fara í ákveðna atvinnuuppbyggingu til að breikka skattstofnana því að hvorki er hægt að skattpína fólkið né fyrirtækin frekar.
Ég tel mjög mikilvægt að menn átti sig á þessu og skil ekki þá viðkvæmni eins og var hjá hæstv. fjármálaráðherra að halda því fram hér í umræðunni, í andsvörum áðan við hv. þm. Kristján Þór Júlíusson, að hann vilji ekki sýna á spilin út af þeim samningi sem liggur fyrir að við þurfum að gera við Landsbankann út af yfirtöku Sparisjóðs Keflavíkur.
Það liggur fyrir að Landsbankinn krefst 30 milljarða afsláttar með því að yfirtaka Sparisjóð Keflavíkur en fjármálaráðuneytið og ráðherrann hafa ekki viljað gefa eftir nema um 11,2. Einhvers staðar þarna á milli liggur lausnin og nú er málið komið til úrskurðaraðila sem mun fara yfir þetta, en við vitum af þessum ákveðna halla þarna inni. Það er mjög mikilvægt að menn tali um það til að átta sig á því að verkefnið er ærið þó að kannski vel hafi gengið.
Þegar við erum að fjalla um fjárlögin sem slík — það er reyndar ekki mjög mikil þátttaka hér í umræðunni eins og komið er þótt margir séu á mælendaskrá, eflaust margir á skrifstofum sínum og fylgjast með þar, í hliðarherbergjum og svoleiðis, það eru afskaplega fáir hér inni. Mér fannst hún dálítið athyglisvert tillagan sem kom fram í dag, tillaga hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar, og hæstv. fjármálaráðherra staðfesti að menn hefðu oft hana rætt hér, svo að held ég að það væri dálítið sniðugt að breyta til og gera það þannig að talsmenn eða framsögumenn nefndarálita flytji hér boðskapinn, eins og sagt er, og skili af sér og síðan skiptum við fjárlagaumræðunni. Við gætum skipt henni á þann veg að við ræðum ákveðin ráðuneyti, við gætum gert þetta á tveimur dögum, við gætum gert þetta á þremur dögum, þá væru viðkomandi fagráðherrar viðstaddir þegar við fjöllum um þann málaflokk sem undir er hverju sinni. Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að þessi hugmynd sló mig nokkuð vel. Hæstv. fjármálaráðherra staðfesti að þetta hefði stundum verið rætt hér áður því að þá fáum við miklu meiri umræðu og ákveðin skoðanaskipti í umræðunni. Þetta er ekki nógu gott eins og þetta er.
Þá ætla ég að koma að því sem við erum að ræða um í fjárlögunum. Við ræðum hér um einstaka liði, það eru komnar breytingartillögur um að rétta af heilbrigðisstofnanir og allar þær mikilvægu stofnanir sem allir hafa samúð með, sem verið er að skera niður. Það er hægt að forgangsraða allt öðruvísi í fjárlögunum og sitt sýnist eflaust hverjum í því og gætu ugglaust orðið 63 útgáfur af því ef allir fengju sitt fram. Það er fullt af fitulagi sem hægt er að skera burtu og setja inn í viðkvæma þætti.
Það sem mér finnst vera mesta umhugsunarefnið, a.m.k. frá því að ég kom hér inn og er nú ekki langt síðan, er í fyrsta lagi hvernig farið er eftir og unnið eftir fjárlögum. Hér er setið á rekistefnum í marga daga, fjárlaganefnd fundar mikið, menn skila af sér fjárlögum og svo eru þau afgreidd til 3. umr. En síðan fer í gang ákveðið ferli sem er með þeim hætti að það kemur oft og tíðum ekki í ljós fyrr en við lokafjárlög viðkomandi fjárlagaárs — við erum til að mynda að fjalla um árið 2012 sem þá kemur hugsanlega í ljós 2014 hver niðurstaðan varð af rekstrinum. Ég bendi á að við erum ekki enn búin að afgreiða lokafjárlög fyrir árið 2010, við erum ekki búin að klára þau. Það er ekki við hv. fjárlaganefnd að sakast, það er hins vegar það umhverfi sem þingið starfar í á hverjum tíma, vinnubrögðin eru með þessum hætti. Ég tel mjög mikilvægt að breyta þessu, þ.e. að allar þær stofnanir sem eru á fjárlögum fari eftir fjárlögum. Sumar stofnanir, og æðimargar, leika lausum hala, í fyrsta lagi vegna þess að þær eru með markaðar tekjur, þær eru með sértekjur og síðan kemur ekkert í ljós fyrr en tveimur árum seinna, hugsanlega, hver reksturinn var í raun. Þetta finnst mér algjörlega ólíðandi.
Það er líka umhugsunarefni hvernig farið er með einstaka stofnanir sem eru í hallarekstri, þær komast sumar upp með að vera hlíft en öðrum ekki og þar fram eftir götunum. Við þekkjum þetta allt saman og þetta er mjög óréttlátt gagnvart þeim forstöðumönnum sem eru að reka stofnanir. Skilaboðin frá þinginu eru þá þau að við viljum verðlauna þá sem standa sig síst í rekstri. Og það eru ekki góð skilaboð. Sumir sinna starfi sínu af mikilli ábyrgð, og flestir, fara í þær aðgerðir sem þeim er ætlað með samþykkt fjárlaga en aðrir gera það ekki. Hver hafa viðbrögðin verið á undanförnum árum?
Nú ætla ég að ítreka að ég er ekki hér í einhverri pólitískri umræðu og þetta er ekki eitthvað sem er að byrja núna. Þetta agaleysi í fjármálum ríkisins hefur staðið í allt of langan tíma. Ef við setjum aga inn í fjárlögin og ætlumst til þess að þeir sem reka viðkomandi ríkisstofnanir fari að fjárlögum munum við geta náð fram miklum sparnaði, bara með skilaboðunum um að þetta virki á þennan veg. Hvernig hefur til að mynda verið brugðist við rekstrarvanda sumra stofnana á undanförnum árum? Það hefur verið gert með því að menn voru farnir að þróa svokallað tilsjónarmannakerfi sem felst í því að ef viðkomandi aðili sem rekur ákveðna stofnun, hvar sem hún er, fer ekki eftir þeim tilmælum sem fjárlögin segja er settur svokallaður tilsjónarmaður með honum. Sá sem rekur stofnunina heldur áfram í sínu starfi og verið er að borga tvöföld laun. En það starf sem viðkomandi forstöðumaður á að gegna breytist ekkert. Ég hef sagt að þetta sé svipað og að vera með skipstjóra sem fiskar ekki neitt og að viðbrögðin hjá útgerðinni væru þau að setja bara annan skipstjórastól bakborðsmegin í brúna. Svo væru bara báðir áfram á hlut og hinn sæti þarna svona sér til yndisauka og horfði á fuglana og legði ekkert til og væri ekkert að skipta sér af því hvað væri verið að gera á miðunum. Þetta er álíka gáfulegt.
Það sem er verst við þetta er að ríkið sendir, og Alþingi þar af leiðandi, röng skilaboð. Mig langar að taka bara eitt dæmi upp úr lokafjárlögum ársins 2010, af því að nú erum við ofboðslega upptekin af því að ræða fjárlög fyrir árið 2012, eðlilega, menn sitja hér og tala við margt fólk sem hefur áhyggjur af að redda 1 milljón, 500 þúsund, svona smáupphæðum. (Gripið fram í: Aurum.) Já, bara nokkrum aurum. Við stóðum í nákvæmlega sömu sporum haustið 2009 við að semja fjárlög fyrir árið 2010. Síðan erum við nú nýlega komin með í hendurnar lokafjárlög fyrir árið 2010, þ.e. núna fyrst erum við að átta okkur á því og gera okkur grein fyrir því hvað gerðist í raun á árinu 2010. Fjárlög fyrir árið 2010 giltu nefnilega ekki fyrir alla, þau giltu bara fyrir suma. Mig langar að nefna eitt dæmi án þess að ég ætli að ræða hér efnislega um stofnunina sem slíka.
Þar er inni stofnun sem var samkvæmt fjárlögum, og fjáraukalögum til viðbótar, á árinu 2010, með samþykkt Alþingis, ætlað að hafa 2 milljarða til reksturs. Um það er rætt hér þegar menn eru að klára fjárlögin 2010 haustið 2009. Síðan þegar við skoðum lokafjárlög fyrir árið 2010, sem sýna meðal annars rekstrarniðurstöðu viðkomandi stofnunar, kemur í ljós að viðkomandi stofnun var ekki rekin fyrir 2 milljarða, eins og fjárlög og fjáraukalög og fjárheimildir Alþingis gera ráð fyrir. Nei, hún var rekin fyrir rúmlega 2,4 milljarða. (PHB: Og heitir?) Ég segi þér það á eftir, hv. þm. Pétur Blöndal. Það kemur ekki málinu við, mér finnst þetta ekki fjalla um hvað stofnunin heitir vegna þess að þetta er okkar ábyrgð og okkar ákvörðun að gera þetta svona, alveg sama hvar við erum í flokki eða pólitík. Þetta fjallar um aga í ríkisfjármálum, þetta fjallar um rétta forgangsröðun og þetta fjallar um sanngirni. Ef hæstv. velferðarráðherra, sem situr hér í salnum, hefði til að mynda þessa fjármuni hér, sem eru 420 milljónir umfram það sem Alþingi samþykkti í fjárlögum og fjáraukalögum, gæti hann þurrkað út allan niðurskurðinn á Landspítalanum með einu pennastriki. Ég er ansi hræddur um að hæstv. velferðarráðherra vildi vera í þeirri stöðu. Það væri nefnilega gott ef menn gætu komið með þessa peninga en vandamálið er að það er búið að eyða þeim. Við breytum engu. Ákvörðunin um að eyða þeim er tekin tveimur árum seinna, það sjá allir hvers konar vitleysa þetta er. Það sem er þó athyglisverðast við þetta er að þessi ákveðna stofnun fer ekki fram úr í fjárheimildum, hún nær sér í fullt af sértekjum, samt er ákveðið í fjárlögum árið 2010 af hv. Alþingi með hvaða hætti viðkomandi sjóður má ráðstafa sértekjum, þ.e. Alþingi samþykkir að þessi megi ráðstafa svona miklu af sértekjum. En hver er niðurstaðan? Það eru bara settar rúmlega 400 milljónir, 420, út úr þessum sjóði inn í rekstur ákveðinnar stofnunar þó að Alþingi hafi ákveðið að ráðstafa fjármunum á annan veg. Á meðan við tökum ekki á þessum hlutum og lendum svo alltaf í þessum, hvað eigum við að segja, deilum eða umræðum, förum í þessar skotgrafir — við getum vissulega alltaf tekist á um forgangsröðun í fjárlögum, það eru skiptar skoðanir um það og það er margt sem ég vildi fá að raða öðruvísi í fjárlögum 2012. En í hverju lendum við? Við lendum í því að hæstv. ráðherrar á hverjum tíma eru settir í þá aðstöðu að þeir eiga að skera niður um ákveðnar prósentur, yfirleitt er þetta flöt prósenta. Svo reyna hæstv. ráðherrar oft og tíðum að fara í ákveðna forgangsröðun sem við gagnrýnum þá alltaf mest fyrir, þ.e. að fara í flatan niðurskurð og ekki forgangsröðun. Hvað gerist þá? Þá endanlega verður allt vitlaust.
Þess vegna segi ég: Það er miklu skynsamlegra ef við komumst upp úr því að setja ákveðin rammafjárlög fyrir ákveðnar stofnanir, alveg sama hvað hún heitir, og þá þýðir það að allar stofnanir fara að fjárlögum, ekki bara sumar. Hugsið ykkur eitt, fjárlög 2012, þau sem við ræðum núna, á þessum tíma, og munum ræða eftir helgina og klára, og menn munu eflaust takast töluvert á og vera með yfirlýsingar og þar fram eftir götunum — við munum ekki hafa hugmynd um hvernig niðurstaða fyrir fjárlögin 2012 verða fyrr en á næsta kjörtímabili, þannig er veruleikinn.
Það er gríðarlega mikilvægt að við höldum áfram þeirri vinnu og þeirri samstöðu sem hefur verið í fjárlaganefnd um að breyta þessum vinnubrögðum í þá veru að hvort sem er markaðar tekjur eða sértekjur fari inn í ríkissjóð, það fari bara beint í ríkissjóð og viðkomandi stofnanir eru reknar á fjárlögum. Þetta gerir það í fyrsta lagi að verkum að við getum sagt að við séum að fylgjast með og forgangsraða í rekstri ríkisins á hverjum tíma. Það sitja allir við sama borð og það fara allir eftir því hvað Alþingi ákveður að eigi að ráðstafa til viðkomandi stofnana. Það kemur ekkert í einhverjum lokafjárlögum tveimur árum seinna. Síðan er mjög mikilvægt að ákveðnar reglur gildi sem ekki verði vikið frá hvað varðar yfirfærslu á heimildum, hvernig menn megi færa þessi 4% milli ára, búa til höfuðstól upp á 10% að hámarki og síðan geta menn gengið að höfuðstólnum með samþykki. Það verða að vera skýrar reglur fyrir allar stofnanir, sama hvað þær heita. Síðan getur alltaf, eins og við þekkjum, eitthvað komið upp á. Þá ætti að vera auðvelt fyrir viðkomandi stofnanir að fá breytingar á fjárlögum sínum eða fjárlagalið þegar menn geta fært rök fyrir því að eitthvað óvænt og ófyrirsjáanleg hafi komið upp á þótt við séum reyndar með þann lið í fjárlögunum sem ég er mjög hlynntur og mjög ánægður með að hann var settur inn fyrst fyrir árið 2010. Mér finnst það mjög skynsamlegt að því leyti til að þá erum við með í fjárlögunum ákveðna upphæð sem við getum tekið ef eitthvað kemur upp á í rekstri ríkisins. Það er gríðarlega mikilvægt að gera þetta svona og ég tel það vera mikilvægustu spurninguna núna fyrir þessi fjárlög: Ætlum við að láta fjárlögin gilda um þær stofnanir sem þar eru eða ætlum við að láta lokafjárlög fyrir árið 2012 gilda þegar kjörtímabili okkar er lokið?
Ég held að það sé mjög mikilvægt að þetta verði rætt hér á hinu háa Alþingi, þ.e. hvernig við ætlum að gera þetta. Mér þætti mjög dapurlegt ef við breyttum ekki núna. Í fyrsta lagi er það hið góða samstarf sem var í hv. fjárlaganefnd og fyrsta skrefið var þegar við skiluðum skýrslu um skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning árið 2009, algjörlega samdóma álit allrar hv. fjárlaganefndar. Síðan þegar ég les núna frumvarp til lokafjárlaga — sem hæstv. fjármálaráðherra á eftir að mæla fyrir, held ég, hann getur hafa verið búinn að því, ég veit það ekki, en við eigum eftir að taka það til umræðu — er skrifaður inn í það texti sem ég er afskaplega ánægður með, sem snýr að þeim þáttum sem við höfum margrætt í hv. fjárlaganefnd, og ráðuneytið er að benda okkur á það sama og tekur undir það, það er algjör samhljómur milli framkvæmdarvaldsins og löggjafarvaldsins. Ég bind því miklar vonir við það að við sendum núna út þau skilaboð að hér eftir verði farið að fjárlögum. Ekki það að sumir þurfi að fara eftir þeim en ekki aðrir. Það er óþolandi, algjörlega óþolandi.
Þegar við erum að fjalla um fjárlögin í heild sinni gerist það á þann veg að við fáum þetta núna, við fáum frumvarp til lokafjárlaga þó að í fjárreiðulögunum segi að þetta eigi að leggjast fram samhliða ríkisreikningi, og ríkisreikningur kom fram í vor. Svo kemur skýrsla Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning einhvern tímann í haust vegna þess að tímasetningin passar ekki. Þegar ríkisreikningur er lagður fram er kannski mikið álag og margir að fara í frí og þá skrifa menn skýrsluna og svo koma lokafjárlögin í október. En lokafjárlögin eru nefnilega bara þingskjal með ríkisreikningi, þau eru ekki neitt annað. Svo er misræmi á milli lokafjárlaga og ríkisreiknings og það er bara hlutur sem gengur ekki upp. Ef við mundum breyta og færa allar mörkuðu tekjurnar og sértekjurnar beint inn í ríkissjóð og létum stofnanirnar vera á fjárlögum gætum við klárað lokafjárlög fyrir árið 2011, þ.e. þegar það klárast, í febrúar á því ári.
Í Bandaríkjunum er þetta tveimur og hálfum mánuði — (PHB: Þeir eru svo litlir.) þeir eru svo litlir, já, segir hv. þm. Pétur Blöndal. Nei, þetta fjallar ekki um það, þetta fjallar um að vera með þannig vinnulag og þannig verklag að hægt sé að gera þetta.
Mig langar líka að ræða hlutverk fjárlaganefndar við að fylgjast með framkvæmd fjárlaga. Það stendur alveg skýrt í þingsköpum að við eigum að fylgjast með framkvæmd fjárlaga, okkar hlutverk í þeirri nefnd eins og annarra nefnda er að hafa ákveðið sérsvið. Okkar skylda er að sjálfsögðu að upplýsa aðra hv. þingmenn sem eiga ekki sæti í fjárlaganefnd, eðli málsins samkvæmt ber okkur að gera það og fylgjast með framkvæmd fjárlaga.
Við fáum þingsályktunartillögu sem var flutt í hv. fjárlaganefnd, alveg samdóma, allir stóðu að henni hér 2010, um aðgang hv. fjárlaganefndar að upplýsingum. Ég verð að viðurkenna að ég er enn ekki sáttur við þær upplýsingar sem við fáum, í fyrsta lagi er fullt af villum í þeim upplýsingum og mjög erfitt að átta sig á þeim. Ég hef fylgst töluvert með þessum skýrslum og lesið þær gaumgæfilega og átt mjög erfitt með að átta mig á þeim. Það gerist þannig að maður fær upplýsingar — eins og til að mynda núna í haust fengum við upplýsingar um yfirlitið frá ríkisféhirði, og hvað gerist svo? Svo kemur fram fjáraukalagafrumvarp örfáum dögum seinna sem var allt öðruvísi en þær upplýsingar sem við vorum að vinna með í fjárlaganefnd sem eftirlitsaðili með framkvæmd fjárlaga.
Síðan kom það fyrir að í samþykkt fjáraukalaganna, sem við samþykktum núna í haust, sem mér fannst dapurlegt, viðurkenni það, fannst mér meiri hluti fjárlaganefndar falla um fyrstu þúfuna. Þá kom upp það mál, við höfðum margoft rætt það í nefndinni, við vorum algjörlega sammála um hvernig við ættum að vinna og hverju við vildum breyta í þeim anda sem ég var að tala um, að beiðni kom frá ákveðinni stofnun um að fá 85 millj. kr. aukaframlag vegna þess að stofnunin var ekki innan fjárheimildanna. Þá fannst mér meiri hluti hv. fjárlaganefndar falla á fyrsta prófinu sem á reyndi eftir að við samþykktum skýrsluna um skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning 2009. Þá féllu menn í þá gryfju að fara í yfirklór og segja: Jú, við hækkum fjárveitinguna í fjáraukalögunum um 85 milljónir. En hver var svo ráðstöfunin hjá meiri hluta hv. fjárlaganefndar? Réttlætingin var sú að viðkomandi ráðuneyti átti að skera niður um þessar 85 milljónir á næsta ári.
Nú liggja hins vegar ekki fyrir breytingartillögur um að þetta ráðuneyti geri það, en þá komum við nefnilega að þeirri grundvallarspurningu að þegar ákveðin stofnun fer fram úr fjárlögum — á því geta verið eðlilegar skýringar og ég er nefnilega ekkert viss um það og hef fengið það staðfest að ekki er hægt að fullyrða að það sé forstöðumaður stofnunarinnar sem ber ábyrgð á þessu eða fjármálastjóri. Ég mundi ekki fullyrða það. Það kemur nefnilega í ljós að rekstraráætlun fyrir stofnunina fyrir árið 2011 — samkvæmt fjárreiðulögum eiga ráðuneytin að samþykkja rekstraráætlanir. Það kemur hins vegar í ljós þegar ég fer að spyrja spurninga að hún var aldrei samþykkt í ráðuneytinu. Það er því dálítið óvarlegt ef menn tala um, ég vil alla vega ekki fullyrða það, að það sé viðkomandi stofnun eða starfsmönnum hennar að kenna að ekki sé farið eftir reglunum ef rekstraráætlun hefur aldrei verið samþykkt.
Hvað þýðir það ef við tökum 85 milljónir af ráðuneyti vegna einnar ákveðinnar stofnunar? Ekki var gerð krafa um að viðkomandi stofnun skæri þetta niður, heldur ráðuneytið. Hver er þá hættan? Hún er tvenns konar alveg augljós, að mínu mati, annars vegar sú að þeir ábyrgu forstöðumenn sem eru undir sama ráðuneyti verði látnir borga hallarekstur þessarar ákveðnu stofnunar. Það er ekkert annað. Jú, eða eins og maður hefur svo margoft séð, að þær stofnanir sem hafa fé til verklegra framkvæmda skera þann lið niður, en halda rekstrinum og yfirstjórninni áfram. Það geta menn skoðað og það hef ég skoðað, viðkomandi stofnanir skera niður í framkvæmdum en skera ekki niður í yfirstjórn. En þetta geta spítalarnir ekki gert, heilbrigðisstofnanirnar, menntastofnanirnar o.fl. þó að ekki séu miklar deilur um það á milli stjórnarflokkanna að hlífa þessum stofnunum. En hlífum við þeim í reynd? Ég er ekki viss um það, ég tel nefnilega að ef menn mundu skoða þetta gaumgæfilega eins og við ættum að vera að gera, betur að mínu mati, kæmumst við hugsanlega að því að ákveðnar stofnanir sem hafa þetta í sínum fjárheimildum skera þetta niður en skilja svo yfirbygginguna eftir. Þá er ekki hægt að deila um það pólitískt, það eru engar deilur um það, en markmiðið með framkvæmda fjárlaga, með fjárlögunum, nær ekki fram að ganga. Þetta er hlutur sem ég tel mjög mikilvægt að verði breytt.
Í þessu svari frá fjárlagaskrifstofu ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hafi ekki getað fylgst með rekstri stofnunarinnar vegna þess að þetta er fært þannig frá fjársýslu ríkisins að ekki er hægt að sjá yfir rekstrarhallann vegna þess að það er verið að tekjufæra allar sértekjurnar og markaðar tekjur innan stofnunarinnar. Þetta er umhverfið sem hv. fjárlaganefnd er í. Nákvæmlega svona. Nákvæmlega eins og lýst er í bréfinu frá fjármálastjóranum um það hvernig ráðuneytið eigi að fylgjast með framkvæmd fjárlaga.
Ég tel, virðulegi forseti, að við gætum eytt miklu meiri kröftum og orku í að vinna að því sem við teldum eðlilegt að gera í staðinn fyrir að vera að deila um einstök atriði. Þó að við getum alltaf tekist á um forgangsröðunina sem er bara eðlilegt verðum við líka að átta okkur á því að niðurstaðan verður kannski ekki endanlega eins og við höldum að hún verði — hún verður kannski bara allt öðruvísi. Þannig erum við kannski oft og tíðum að rífast um hluti sem við vitum ekkert um.
Ég er búinn að nota megnið af ræðu minni í að fara yfir það hverju við þurfum að breyta, skoðun mína á því. Það kemur ekki pólitík við heldur snýst það um fagleg vinnubrögð. Það má ekki vera þannig að það sé ekki sama hverjir stýri landinu, það sé bara skipt um einstaklinga á spottunum, hver togar í og hver græjar og gerir hlutina. Þessu verðum við að breyta til að ná aga í ríkisfjármálin. Ef við náum ekki niður halla ríkissjóðs erum við í töluvert vondum málum, ég hef áhyggjur af því.
Þó að meiri hlutinn hafi fallið á þessari fyrstu þúfu bind ég miklar vonir við að fjárlaganefnd nái að gera ákveðnar breytingar á vinnubrögðum í þinginu. Það er búið að skipa undirhóp og ég bind miklar vonir við að við munum skila af okkur tillögum um breytingar sem munu hljóta samþykki hér í þinginu.
Ég ítreka að ég tel mjög mikilvægt að við tökum efnislega og heiðarlega umræðu um það hver skilaboðin eiga að vera með fjárlögum árið 2012. Það er gríðarlega mikilvægt að við gerum það vegna þess að kjörtímabili okkar verður lokið þegar lokafjárlög fyrir árið 2012 koma fram. Það er bara svoleiðis. Þess vegna tel ég mikilvægt að skilaboðin verði skýr. Ég bind miklar vonir við þá samstöðu sem er í hv. fjárlaganefnd um að breyta vinnubrögðunum.
Ég vil bara segja eitt til viðbótar í sambandi við vinnubrögð og umhverfi nefndarinnar, en mjög margir hv. þingmenn og jafnvel hæstv. ráðherrar hafa mjög miklar áhyggjur af því að hv. fjárlaganefnd hafi náð samstöðu um að færa frá sér svokallaða safnliði. Skipaður var undirhópur sem í sátu hv. þingmenn Oddný G. Harðardóttir, sem var þá formaður fjárlaganefndar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þuríður Backman og Þór Saari. Mjög margir hafa miklar áhyggjur af þessu en ég hef minni áhyggjur af því, ég viðurkenni það. Ég ætla að upplýsa það hér að ég er mun rólegri. Hv. þm. Oddný G. Harðardóttir hefur haldið utan um þetta verkefni í samstarfi við formann nefndarinnar til að klára það í þeim önnum sem við erum í. Þarna erum við föst í því að vera að fjalla um mjög litlar upphæðir. Ég geri ekkert lítið úr mikilvægi þess að þeim sé úthlutað með eðlilegum hætti, alls ekki. Hver var hugsunin og hvert var markmiðið þegar þessi ákvörðun var tekin í hv. fjárlaganefnd hér á þinginu? Það var að vanda betur til vinnubragða og hafa þetta faglegra og betra. Það er markmiðið. Þar verðum við að standa saman um og passa að gangi eftir.
Sumir þeirra sem hafa af þessu miklar áhyggjur eru kannski ekkert að horfa á stóru myndina. Það er ekkert verið að fjalla mikið um það eða spá í það þó einhverjir milljarðar fari hingað og þangað, út og suður, og hvað er gert í því. Þess vegna verðum við að taka þessa umræðu með ábyrgum hætti og heiðarlegum.
Við þurfum bara líka að ræða hvernig við viljum hafa þetta. Það þýðir ekkert að tala um hlutina öðruvísi en þeir eru. Í nýju þingskapalögunum á fjárlaganefnd að gefa efnahags- og viðskiptanefnd umsögn um tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins. Þetta er algjörlega glórulaust og vonlaust, ég hef ekki orðið var við marga sem andmæla því. Það hefur verið þannig í gegnum tíðina að efnahags- og viðskiptanefnd gefur hv. fjárlaganefnd umsögn um tekjuhlið frumvarpsins. Eins og þetta er í þingsköpunum, sem ég greiddi atkvæði, á fjárlaganefnd að gefa efnahags- og viðskiptanefnd umsögn um tekjuhliðina, svo erum við með gjaldahliðina í hv. fjárlaganefnd, þannig að enginn er með heildaryfirsýn yfir fjárlög ríkisins. Það verður væntanlega að setja forsætisnefnd yfir til að fylgjast með gjalda- og tekjuhliðinni.
Það var margoft rætt í hv. fjárlaganefnd hvernig að þessu yrði staðið, en einhverra hluta vegna hefur málið ekki verið útkljáð. Það er mjög mikilvægt að við klárum að ganga frá því hvernig þetta verður. Það sem stendur í þingsköpunum í dag er að mínu mati bara yfirsjón. Þetta gengur ekki. Það getur verið að einhverjir séu ekki sammála mér í því, en fjárlögin eru að mínu mati munaðarlaus, þ.e. tekjuhliðin á einum staðnum og útgjaldahliðin á öðrum. Þetta er algjörlega galið, getur ekki gengið, alla vega er það mín skoðun. Það getur verið að einhver sé ekki sammála mér um það.
Það er mikilvægt að við hættum að tala um þetta eins og við höfum verið að gera. Menn hafa verið að reyna að vinna í þessu. Sumir túlka þetta á einn veg og aðrir á annan veg. Ég tel mjög mikilvægt að við ræðum þetta á fundi fjárlaganefndar og fjárlaganefndin taki sig saman um, ef samstaða er um það, ég veit ekkert um það, að flytja breytingartillögu við þingsköpin. Punktur. Ég er búinn að fá nóg af því að nefndarritarar séu sendir til að tala við þennan og tala við hinn um það hvernig menn túlka hlutina og hvernig þeir eigi að vera. Þetta þarf bara að vera á hreinu. Þetta er ekkert flóknara en það. Það verður að taka af skarið í þessu, því annars lendum við í því við 3. umr. að rífast og pexa um það hvort hv. fjárlaganefnd hafi sinnt eftirlitshlutverki sínu og rýnt nægilega vel tekjuhlið frumvarpsins. Það hefur ekki verið gert á sama hátt og gert hefur verið undanfarin ár, vegna þess að sá hluti hefur verið í efnahags- og viðskiptanefnd og þar hafa miklu fleiri aðilar verið kallaðir til en hv. fjárlaganefnd hefur fundað með. Þetta er bara hlutur sem við verðum að ákveða hvernig við gerum og þarf ekkert að vera að rífast og pexa um og kenna hvert öðru um hvernig það er gert. Þetta er bara verkefni sem verður að ganga í.
Við fáum breytingartillögu fyrir 2. umr. þar sem vaxtagjöld ríkissjóðs eru lækkuð um 591 milljón. Já, já, ég var nú búinn að lesa þessi gögn, en áttaði mig ekki á þessu þannig að ég spurði nú enn frekar, og við í hv. fjárlaganefnd, hvernig á þessu stæði, hver skýringin væri. Var skýringin sú að ekki stæði til að draga á restina af gjaldeyrislánunum, á lánalínurnar? Gátum við fengið að vera með þær áfram eins og verið hefur? Svo kom skýringin. Hún er í stuttu máli þessi:
Lækkun vaxtagjalda um 591 milljón skýrist af því að útgáfa óverðtryggðra ríkisbréfa lækkar á árinu 2011. Hún lækkar sem sagt, óverðtryggð ríkisbréf munu lækka, og á móti á að hækka útgáfu verðtryggðra ríkisbréfa. Þetta þýðir nokkuð sem ég hafði ekki áttað mig á fyrr en ég fékk þessar upplýsingar, að þegar menn eru að tala um óverðtryggt og verðtryggt þá fara verðbæturnar náttúrlega á höfuðstólinn. En við erum hér með þessum hætti að færa niður útgjöld hjá ríkinu um 591 milljón. Ég spyr: Er þetta raunverulegur sparnaður? Eða er verið að lengja í halanum? Ég er ansi hræddur um að það sé þannig, það gengur ekki að tekjufæra þennan hluta, að lækka vaxtagjöldin, því vaxtagjöldin eru raunverulega þau sömu, þau færast bara seinna í tíðinni, ekki á rekstrargrunninn. Hvað er þá í rauninni verið að gera?
Ég tel því mjög mikilvægt að við höfum það alveg á hreinu að efnahags- og viðskiptanefnd rýni tekjuhluta fjárlaga. Ef hv. fjárlaganefnd á að gera það, sem ég er algjörlega ósammála, þó það standi hér, þurfum við að vinna þetta allt öðruvísi í hv. fjárlaganefnd en gert hefur verið. Við þyrftum að skoða þetta sérstaklega. Við þyrftum að skoða hvaða áhrif það hefur að láta lífeyrissjóðina taka þátt í því að greiða sérstakar vaxtabætur. Hvað þýðir það í raun og veru þegar stærsti hlutinn af því kemur kannski frá lífeyrissjóðum sem eru með ríkisábyrgð? Þá erum við að gera hvað? Þá erum við að tekjufæra inn hjá ríkinu vaxtabætur sem opinberir lífeyrissjóðir eiga að greiða, en í raun og veru lengjum við bara í halanum af því skuldbindingin hjá ríkissjóði er um 400 milljarðar inn í opinberu sjóðina. Hvers konar stjórnun er þetta? Þetta gengur ekki. Við verðum að skoða þetta.
Það er mjög mikilvægt að þetta verði skoðað á milli 2. og 3. umr. til þess að við getum farið að ræða um fjárlögin og framkvæmdir með fjárlögunum eins og við eigum að gera það en ekki í einhverjum upphrópunarstíl, í pólitískum átökum. Við þurfum að ná saman um það hvernig við viljum gera þetta með sem faglegustum hætti þannig að allir sitji við sama borð. Þá verður það spurningin sem mér finnst að eigi eftir að svara: Eiga allar stofnanir að fara eftir fjárlögum fyrir árið 2012 (Forseti hringir.) eða ekki?