140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[21:42]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er nærri viss um að ef ráðherrann fengi svona spurningu hjá hv. fjárlaganefnd, hvort það væri ekki örugglega þannig að forstjóri þeirrar stofnunar sem hefur farið fram úr sé farinn að leita sér að vinnu sem hann ræður við, að þá þurfi það ekki að gerast nema einu sinni, tvisvar, því að um leið og það gerist fara menn að fjárlögum. Ég er nærri viss um það, og allir starfsmenn viðkomandi stofnunar eða fyrirtækis vita það.

Varðandi það þegar hluti af skuldbindingu ríkissjóðs er ekki færður, eins og með B-deild LSR, þá geta menn að sjálfsögðu búið til tekjur eins og þeir bara vilja með því að færa sem gjöld inn á þann lið sem ekki hefur verið færður. Það er einmitt það sem mér sýnist að menn séu að gera með þá peninga sem vantar inn í þessar sérstöku vaxtabætur frá lífeyrissjóðunum sem er ófrágengið, sem er náttúrlega líka eiginlega ekki hægt.

Ég er mjög ánægður með að hv. þingmaður komi — ég treysti sem sagt á að hann komi þeirri umræðu í gang innan hv. fjárlaganefndar að hún ræði það hvernig er skynsamlegt og ráðlegt að breyta þingsköpum þannig að einn aðili hafi yfirsýn yfir fjárlög ríkisins þegar þau eru samþykkt.