fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að kvarta yfir áliti meiri hluta velferðarnefndar, enda var ég mjög ánægður að sjá að þar kom fram hörð gagnrýni á þá stefnu sem hefur verið keyrð áfram í fjárlögum hvað varðar niðurskurð í heilbrigðismálum.
Ég verð að viðurkenna að ég varð óneitanlega fyrir vonbrigðum þegar ég heyrði hv. þm. Álfheiði Ingadóttur gefa í skyn, ef ég hef skilið hv. þingmann rétt, að álitið hefði verið öðruvísi ef legið hefðu fyrir tillögur um breytingar á heilbrigðisstofnunum. Nú langar mig að upplýsa þingmanninn um að hvergi hefur verið breytt þeirri stefnu sem var mörkuð í fjárlögunum fyrir um ári síðan og mun gjörbylta heilbrigðiskerfi landsmanna, sérstaklega á landsbyggðinni.
Hún nefndi líka í umræðunum hérna að álit þeirra hefði verið samið löngu áður, eða ég skyldi það þannig. Þetta var nú reyndar þannig í fjárlaganefnd að við fengum yfirlestur frá meiri hluta velferðarnefndar tveim dögum áður en málið var tekið úr fjárlaganefnd. Degi áður kom skýrslan frá aðstoðarmanni ráðherra sem þingmaðurinn vísaði í áðan og nú þrem, fjórum dögum seinna erum við að ræða fjárlögin.
Mig langar að spyrja hv. þingmann í ljósi þess að andstaða hefur verið við þessa breytingu í meira en ár frá því að fjárlagafrumvarpið kom fram haustið 2011: Hvernig stendur á þessum vinnubrögðum? Hvernig stendur á því að við horfum upp á það hér tveim, þrem dögum fyrir 2. umr. fjárlaga að verið er að breyta og bæta og að álit velferðarnefndar (Forseti hringir.) sé bara ónýtt, eins og ég skil það?